Fjarstæðukenndar skýringar á Ironmaster myndbandi 9. maí 2008 13:16
Guðmundur Jónsson hefur ávallt neitað því að hafa haft samræði við nokkra þeirra kvenna sem dvöldu hjá honum sem skjólstæðingar á meðferðaheimilinu Byrginu. Það hefur hann gert þrátt fyrir mikið magn sönnunargagna sem benda til hins gagnstæða. Eitt frægasta sönnunargagnið er líklega myndband sem sýnir hann stunda bdsm-kynlíf með einum af kvenkyns skjólstæðingi sínum. Sú lagði síðar fram kæru á hendur honum. Myndbandið gekk eins og eldur um sinu um internetið en lýsingar Guðmundar sjálfs á því hvernig það kom til eru afar forvitnilegar. Guðmundur segir að í byrjun október 2006 hafi konan, sem sést með honum á myndbandinu, spurt hann að því hvort hann vildi sitja fyrir í ljósmyndatökum en hún hefði sagst hafa mikinn áhuga á ljósmyndun og vildi reyna fyrir sér í því fagi. Konan hafi afhent honum bækling sem hafi innihaldið teikningar af konulíkömum í fjötrum, konum af asísku bergi brotnar. Guðmundur segist hafa séð að þarna hafi verið myndir sem flokka mætti undir líkamsbindingar og hefði hann tekið bæklinginn með sér og sýnt konu sinni, Helgu. Hann hafi síðan ákveðið að skila bæklingnum til konunnar og ætlunin hafi verið að gera henni það alveg ljóst að það kæmi ekki til greina að hann sæti fyrir á ljósmyndum hjá henni eins og ljósmyndirnar sýndu í bæklingnum. Guðmundur segist hafa komið í íbúð konunnar þennan dag. Hann hafi rætt við hana og þegið hjá henni kaffisopa og hún hafi sýnt honum ljósmyndavél, vídeóupptökuvél á þrífæti, ferðatölvu, harðan disk og ferðageislaspilara. Síðan gerðist það að hann hafi fundið til vanlíðanar og farið í „blackout", óminnisástand. Það næsta sem hafi gerst var að hann rankaði við sér um nóttina og þá hefði hann verið einn í íbúðinni, liggjandi í sófa í stofunni og verið klæddur í boxer-nærbuxur, í skyrtu og sokkum en gallabuxur hans hafi legið á gólfi við hlið sófans. Kvaðst Guðmundur hafa verið nokkuð lengi að átta sig á því hvað hafi gerst og hvernig væri komið fyrir honum Daginn eftir segist hann svo hafa fundið í bakpoka sínum áfengispela. Það hefði komið honum mjög á óvart að finna pelann, sem hafi verið vodkapeli, og við skoðun hans mátti sjá þykkan vökva, gulleitan. Það hafi verið smálögg í pelanum og hefði hann fundið við að þefa úr honum að innihaldið var smjörsýra en hann hefði þekkt það á lykt og útliti. Guðmundur er þess fullviss að konan hafi byrlað sér ólyfjan og gert hið umdeilda Ironmaster myndband á meðan. Aðspurður hvernig stæði þá á því að samtöl hans og konunnar heyrðust á myndbandinu, svaraði Guðmundur að konan hefði tekið upp rödd hans við fyrra tilefni og skeytt henni inn á myndbandið.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Innlent Sektuðu í grennd við Símamótið Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Fleiri fréttir Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Vonar að verslanir hafi lært af reynslunni Rannsaka kynferðisbrot og líkamsárás á Landsmóti Gefur engin fyrirheit um lækkun áfengisgjalda Sjá meira