Lífið

Vonar að veislan tryggi himnaríkisvist

Atli Steinn Guðmundsson skrifar
Hópur hindúa í Bihar-héraði baðar sig í Ganges-fljótinu.
Hópur hindúa í Bihar-héraði baðar sig í Ganges-fljótinu. MYND/AP

Auðug indversk ekkja, sem býr í Bihar á Indlandi, vonast eftir öruggri vist á himnum eftir að hún hélt stórveislu fyrir hundrað þúsund manns.

Til veislunnar bauð hún íbúum allra nærliggjandi bæja og þorpa og stóð veislan í tvo daga. Hún segist nú geta áhyggjulaus hafið sína hinstu för yfir móðuna miklu, vitandi að hennar bíði vist í himnaríki. Það eina sem hún hefur áhyggjur af er að enginn muni halda erfidrykkju eftir hana, þar sem hún á enga ættingja á lífi.

Reuters greindi frá.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.