Spilla Fylkismenn titilvonum FH eins og 1989? Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 26. september 2008 09:05 Halldór Arnar Hilmisson, leikmaður Fylkis. Mynd/Daníel
Fyrir lokaumferðina í Íslandsmótinu sumarið 1989 var FH á toppi deildarinnar með eins stigs forystu á KA. FH-ingar þurftu aðeins að vinna sigur á Fylki í lokaumferðinni til að verða Íslandsmeistarar. Guðmundur Valur Sigurðsson kom FH-ingum yfir strax í upphafi leiks og virtust Hafnfirðingar vera í kjörstöðu. En Örn Valdimarsson jafnaði fljótlega fyrir metin og á 79. mínútu kom ein sárasta stund í sögu FH. Hinn sautján ára gamli Kristinn Tómasson var nýkominn inn á sem varamaður. Hann fékk boltann á vítateigslínunni og sneri bakinu í markið. Skyndilega lyfti hann boltanum yfir sig og um leið varnarmenn FH. Hann stakk sér inn í vítateiginn og gerði út um titilvonir FH með stórglæsilegu marki. Marki sem síðar var valið mark tímabilsins. Á sama tíma var KA að spila í Keflavík þar sem liðið vann góðan 2-0 sigur. Þar með var fyrsti og eini Íslandsmeistaratitill KA tryggður. Sigurinn dugði reyndar Fylkismönnum ekki og féllu þeir á lakari markatölu en Víkingur. Á morgun fer lokaumferðin fram í Landsbankadeild karla. Og nú, rétt eins og fyrir nítján árum síðan, eru Fylkismenn í þeirri stöðu að geta mögulega spillt titilvonum FH-inga á ný. FH-ingar eru þó ekki í sömu stöðu nú og þá. Þeir eru tveimur stigum á eftir toppliðinu (rétt eins og KA forðum daga), Keflavík. Keflavík þarf að allra helst að vinna Fram á heimavelli til að gulltryggja titilinn. Ef Keflavík gerir jafntefli dugar FH tveggja marka sigur gegn Fylkismönnum. Ef Keflavík tapar dugir FH-ingum sigur í Árbænum. Fylkir hefur verið í fallbaráttu í sumar rétt eins og 1989, sem var fyrsta tímabil Fylkismanna í efstu deild. En nú hafa þeir bjargað sér frá falli og hafa því upp á ekkert að spila á morgun nema stoltið. Það má einnig taka fram að árið 1989 féll Keflavík með Fylkismönnum í aðra deild. Staða þeirra er þó allt önnur nú.Þess má einnig geta að Þorvaldur Örlygsson, núverandi þjálfari Fram, var lykilmaður í liði KA sem og Ormarr, bróðir hans. Þorvaldur var kjörinn leikmaður ársins þetta tímabil og í dag er Almarr, sonur Ormarrs, í leikmannahópi Fram.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Enski boltinn Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti Belgísku bakgarðskóngarnir með lygilegt heimsmet Sport Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Bayern gefur út yfirlýsingu vegna veikinda Kompany Fótbolti Vinirnir deila heimsmetinu en hvorugur er sigurvegari Sport „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ Íslenski boltinn Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Fótbolti Fleiri fréttir FH-konur töpuðu leiknum og titlinum en fengu bæði stóru verðlaunin „Þetta er bara ólýsanlegt” „Fólk var alveg að efast en ég vissi alltaf að þetta myndi detta” Gylfi: „Við erum ódýrasta liðið í þessari deild“ Bríet Fjóla: „Sjálfstraustið er komið til baka“ Uppgjörið: Þróttur-Grind/Njarðv. 3-2 | Markaveisla í seinni Uppgjörið: ÍBV - Stjarnan 2-0 | Sannfærandi sigur tryggði ÍBV bronsið Uppgjörið: Breiðablik-FH 6-2 | Ása með fimm mörk í meistarasýningu Blika Matthías í stað Viktors við hlið Sölva „Förum inn í daginn til þess að njóta“ Höttur slítur samstarfi og FHL heyrir sögunni til FH-ingurinn sem er fljótastur í Evrópu: „Góð gen eða eitthvað“ „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Svona missti Aron markið sögulega Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Framlengir í Vesturbænum „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjáðu mörkin sex og rauða spjaldið í Dalnum Bætti stoðsendingametið sem faðir hans átti í tuttugu ár Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu Sjá meira