Skýrslutökur vegna fjármála Byrgisins í mánuðinum 6. mars 2008 11:06 Guðmundur Jónsson hefur þegar verið ákærður fyrir kynferðisbrot. MYND/GVA
Skýrslutökur hefjast í þessum mánuði hjá Ríkislögreglustjóra vegna rannsóknar á meintum efnahagsbrotum í tengslum við rekstur Byrgisins. Björn Þorvaldsson, saksóknari hjá efnahagsbrotadeild Ríkislögreglustjóra, segir að skýrslur verði þá meðal annars teknar af Guðmundi Jónssyni, fyrrverandi forstöðumanni Byrgisins, vegna málsins. Ríkislögreglustjóri ákvað að rannsaka málið í kjölfar svartrar skýrslu Ríkisendurskoðunar um fjármál Byrgisins sem birt var í byrjun síðasta árs. Niðurstöður hennar benda til að ólöglega hafi verið staðið að rekstrinum og að fjármunir sem sannanlega hafa runnið til stjórnenda og starfsmanna Byrgisins séu langt umfram það sem fram komi í bókhaldi eða ársreikningum félagsins. Var um tugi milljóna króna að ræða. Fram kom í fréttum á síðasta ári að Guðmundur Jónsson gæti átt yfir höfði sér allt að sex ára fangelsi verði hann sakfelldur fyrir fjárdrátt og umboðssvik, en Byrgið naut styrkja frá ríkinu á árunum 1998-2006. Guðmundur hefur þegar verið ákærður fyrir kynferðisbrot gegn fjórum stúlkum sem voru skjólstæðingar hans hjá Byrginu. Er honum gefið að sök að hafa notfært sér andlega annmarka kvennanna til þess að hafa við þær samræði eða önnur kynferðismök. Upp komst um málið eftir umfjöllun fréttaskýringaþáttarins Kompáss í desember 2006.
Mest lesið Lokuðu flugbraut vegna dróna Innlent Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais Innlent „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Innlent Sænskur Evrópuþingmaður kærir danskan kollega til lögreglu Erlent Gagnrýnin byggð á misskilningi Innlent McConnell birtir mynd af sér á spítala Erlent Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Innlent Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Innlent Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Innlent „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Innlent Fleiri fréttir Innbrot í sælkerabakarí: „Ég grét í allan gærdag en opnaði samt“ Brotist inn í Fíladelfíuna og gítar stolið Gæti orðið hálf milljón árið 2037 Gagnrýnin byggð á misskilningi Innbrot í kirkju á höfuðborgarsvæðinu Lokuðu flugbraut vegna dróna Hanna Katrín fékk bréf frá Judi Dench og Ricky Gervais „Gefa löggjafanum og lögreglunni fingurinn og fólkinu í landinu líka“ Sektuðu í grennd við Símamótið „Við erum að svara kalli tímans“ Búið að opna Holtavörðuheiði aftur Umferðarteppa á Hellisheiði vegna umferðaróhapps Á fimmta tug barna vilja sækja skóla í Grindavík „Þetta er algjörlega óafsakanlegt hjá einu af ríkustu löndum í heimi“ Hvalur skaut up kollinum í Hólmavík Mælirinn segir 33 gráður „Af og frá“ að Ísland framselji löggjafarvaldið með inngöngu Atvinnulausum í byggingariðnaði fjölgar gríðarlega Þrjú kynferðisbrot á tónleikasvæðinu til rannsóknar Brotist inn og peningaskápur tekinn Þrír gistu í fangageymslu og töluvert um fölsuð skilríki Hitabylgjur, fullveldi og Megas Þrír handteknir grunaðir um líkamsárás Heilbrigðiseftirlitið ekki áður séð mengun í fjörunni við vinnslustöð Hvals Unnið að hrunvörnum við Holtsnúp Hluti af þriðja vinningi lenti á Íslandi Stutt í að beint flug til Kína fari í sölu Ríkissaksóknari telur að Margrét eigi ekki að fá að áfrýja til Landsréttar Túlka verði niðurstöðurnar af varfærni Breiðholtsbrú opin fyrir umferð Sjá meira