Íslenski boltinn

Keflvíkingar yfir í hálfleik

Hólmar Örn skoraði fyrir Keflavík
Hólmar Örn skoraði fyrir Keflavík

Nú er kominn hálfleikur í viðureign dagsins í Landsbankadeild karla þar sem Íslandsmeistarar Vals taka á móti Keflvíkingum. Það eru gestirnir sem leiða í hálfleik með marki Hólmars Rúnarssonar á 23. mínútu, en áður hafði Kjartan Sturluson í marki Vals varið slaka vítaspyrnu frá Þórarni Kristjánssyni.

Fylgst er með gangi mála á Boltavaktinni hér á Vísi og þá er leikurinn sýndur beint á Stöð 2 Sport.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×