McCann hjónin deila við portúgölsk yfirvöld 12. apríl 2008 21:00 Kate og Gerry sjá mjög eftir að hafa skilið börnin eftir í íbúðinni eftirlitslaus á meðan þau voru á veitingastaðnum. MYND/AFP
Kate og Gerry McCann gætu hætt við að snúa aftur til Portúgal til að hjálpa lögreglu við endurgerð atburðar kvöldið sem dóttir þeirra hvarf af sumarleyfisíbúð í Praia da Luz. Ástæðan er heiftarleg deila vegna skýrslutöku portúgölsku lögreglunnar sem lak í fjölmiðla. McCann hjónin telja að skýrslunum sem þau gáfu lögreglumönnum klukkustundum eftir að dóttir þeirra hvarf 3. maí síðastliðinn hafi af ásettu ráði verið lekið til fjölmiðla af portúgölskum yfirvöldum. Í þeim kemur meðal annars fram að Madeleine og Sean bróðir hennar hafi vaknað upp grátandi nóttina áður en stúlkan hvarf. Foreldrarnir hafi ekki heyrt í þeim þar sem þau hafi verið á nálægu veitingahúsi. Madeleine mun hafa spurt Kate næsta morgun: „Mamma af hverju komstu ekki þegar við vorum að gráta í gærkvöldi?" Á fréttavef Sky segir að hjónin krefjist innri rannsóknar dómsmálaráðuneytisins í Portúgal á því hvort smáatriðum hafi verið komið til spænsks fréttamanns af ásettu ráði til að láta þau líta illa út daginn sem þau settu af stað herferð í Brussel fyrir nýju viðvörunarkerfi um Evrópu fyrir börn sem hafa týnst. Þingmaður í heimabæ þeirra hefur heitið því að taka málið upp við utanríkisráðuneytið og talið er að lögmenn hjónanna í Portúgal muni mótmæla við yfirvöld þar. Clarence Mitchell talsmaður McCann fjölskyldunnar hefur hvatt portúgölsku ríkisstjórnina að „ná taki" á lekanum. Samstarfsvilji við portúgölsku lögregluna hefur dvínað varðandi endurgerð atburðanna vegna málsins. Paulo Rebelo lögreglustjóri sem leiðir rannsóknina á málinu er farinn aftur til Portúgal frá Bretlandi, degi fyrr en áætlað var. Menn hans hafa verið í Bretlandi alla vikuna við spurningar á hinum svokallaða Tapas 7 hóp, sem samanstendur af vinum McCann hjónanna sem voru með þeim á Tapas bar kvöldið sem Madeleine hvarf. Mitchell ítrekaði að hjónin vissu að þau hefðu gert mistök með því að skilja börnin sín þrjú eftirlitslaus eftir í íbúðinni þegar Madeleine var rænt, en lagði áherslu á eftirsjá þeirra yfir því að hafa gert það. Hann bætti ennfremur við að spurning Madeleine við morgunverðarborðið hefði verið meira í átt við eðlilegt tal en skömm. „Þau gerðu mistök sem enginn, enginn, sér meira eftir en þau. Og mögulega þurfa þau að lifa með þeirri eftirsjá allt sitt líf," sagði Mitchell að lokum.
Madeleine McCann Mest lesið Aukafundur borgarfulltrúa: Tugir stöðugilda í nýrri hrinu uppsagna og niðurskurðar Innlent Ákærður fyrir að drepa tvo af gáleysi Innlent „Von okkar er að lík Lúlla finnist og við getum jarðað hann“ Innlent „Við eigum bara að þegja og sætta okkur við þetta“ Innlent Markmið að kanna aðstæður en ekki björgun Innlent Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Erlent Fjörutíu föngum fylgt úr landi fyrstu níu mánuði ársins Innlent Lögregla kölluð til vegna drengjanna í Goðafossi Innlent Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Erlent Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Erlent Fleiri fréttir Ákæra Comey enn eina ferðina Stubb og Støre ræddu við Pútín Fóðruðu loftslagsvá aðeins minna en metárið á undan Kjörstaðir opnir í Ísrael Óljóst hver mun leiða ríkisstjórn Stúdenta í Serbíu Trump segir svindlað í brasilísku kosningunum Kosningar í Ísrael: Arabaflokkarnir gætu ráðið úrslitum Biskupar sjá eftir bænastund með Trump Fundu 31 byssu, Hitler-brjóstmynd og danskan fána Áhrifavaldar sektaðir fyrir að auglýsa veðmál Stór hluti Oxford Street orðinn göngugata Sagðir vilja fá Orbán til að stýra Sameinuðu þjóðunum Áfall fyrir Donald Trump og Vladimír Pútín Tókst ekki moða neitt úr miðjunni Fundu auðgað úran í dánarbúi Óvæntur sigur Lula en Bolsonaro vill ógilda úrslitin „Noregur sökkar“ Vučić játar ósigur Stúdentahreyfing freistar að velta þaulsetnum Vučić Leikur á hnífsegg í Brasilíu Machado snýr heim eftir nær árs útlegð Hinn grunaði með geðklofa og fluttur á geðdeild Stefna Anthropic fyrir brot á höfundarrétti Presley Loka Vesturbakkanum á kjördag Ísraela Serbar ganga til skyndikosninga Baráttan um Brasilíu Sleit sambandi við föður sinn í ljósi ásakana Nóg sé komið af Trump Musk segi ósatt um Starlink Lést við að bjarga sonum sínum undan straumnum Sjá meira