Sigurður Ragnar: Ætlum okkur áfram Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 18. nóvember 2008 13:44 Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari.
Sigurður Ragnar Eyjólfsson landsliðsþjálfari í knattspyrnu var hvergi banginn þó svo að Ísland hafi dregist í erfiðan riðil í EM í Finnlandi sem fer fram næsta sumar. Ísland er í riðli með heims- og Evrópumeisturum Þýskalands sem og Noregi og Frakklandi. „Mér líst mjög vel á þetta en það er óhætt að segja að þetta sé erfiður riðill. Hann hefði varla getað verið erfiðari. Við fengum þrjár af fjórum sterkustu þjóðunum en það vantaði bara Svíþjóð. Þetta eru liðin sem eru í öðru, sjötta og sjöunda sæti heimslistans." „En við ætlum okkur áfram. Við höfum unnið Frakkland áður og getum gert það aftur. Það er langt síðan við mættum Noregi en þar hafa átt sér ákveðin kynslóðaskipti stað og því ágætur tímapunktur til að mæta þeim. Það verður svo líka gaman að mæta heims- og Evrópumeisturunum enda gaman að mæta þeim bestu." Ísland mætir fyrst Frakklandi en síðasti leikurinn í riðlinum verður gegn Þýskalandi. Miðað við yfirburði Þjóðverja í þessari keppni er ekki ólíklegt að liðið verði þá búið að tryggja sér sæti í fjórðungsúrslitunum en Þýskaland hefur unnið EM í síðustu fjögur skipti. „Það er samt ómögulegt að segja hvort að það sé gott eða slæmt að mæta Þjóðverjum í síðasta leik. Það getur allt gerst í þessum leikjum enda öll liðin sterk. Maður veit aldrei hvernig þetta gæti þróast." „Við höfum verið að leggja drög að undirbúningi okkar fyrir mótið og við munum hefja æfingar á næsta ári og leika talsvert af undirbúningsleikjum. Við höfum hingað til vanið okkur á að fara í alla leiki til að vinna þá og ætlum ekki að breyta því nú. Ég er því hvergi banginn."
Fótbolti Mest lesið Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Fótbolti Þjóðhátíð er Gunnar Lárus kom heim á Reyðarfjörð Sport ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Íslenski boltinn Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Íslenski boltinn Hreinskilin hnefaleikakona: „Ég er hætt að vera næs“ Sport Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Enski boltinn „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Enski boltinn Nablinn grillaði verstu liðin: „Er bærinn Hveragerði líka í fallbaráttu?“ Körfubolti Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Fótbolti „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Enski boltinn Fleiri fréttir „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki míns“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Bayern München - Arsenal | Englandsmeistararnir heimsækja þýska stórliðið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Akranesvöllur sundurgrafinn og handónýtur Hólmar Örn hættur: „Þakklátur fyrir allt ferðalagið“ Appelsínugul viðvörun og leikur United í hættu ÍA fékk skömm í hattinn en undirbýr byltingu Missir af stórleik kvöldsins og verður í faðmi fjölskyldunnar Með slitið krossband og þarf að fara í aðgerð Vilja að Crystal Palace losi sig við lukkudýrið sitt Sá hann á æfingu og vissi að hann hefði fundið gull Meistaradeildin að slá markamet Dæma nokkra Egypta í bann vegna hegðunar á HM „Ég æfði tíu klukkustundir á dag en enginn sá mig“ Draumur að rætast hjá Fabregas á móti Manchester United „Sjáið Rio, hann var frábær í kvöld“ Phil Foden með þrennu í Meistaradeildinni í kvöld Evrópumeistararnir skoruðu tvö mörk í lokin Liverpool með fjögurra marka endurkomu Mark Masons Greenwood í Meistaradeildinni dugði ekki „Átti erfitt með að bæta Barça“ Snýr Trent aftur til Liverpool? Spáir fimm til tíu ára félagsskiptabanni Framlengir í Vesturbænum Ten Hag um Ronaldo: „Hann brást mér og liðinu“ „Hverjir í fjandanum eru í markanefnd?“ Sjá meira