Íslenski boltinn

Ljóst hvaða lið mætast í undanúrslitum 3. deildar

Elvar Geir Magnússon skrifar
KV komst í undanúrslit. Mynd/Fckv.com
KV komst í undanúrslit. Mynd/Fckv.com

BÍ/Bolungarvík, KV, Skallagrímur og Hamrarnir/Vinir komust í kvöld í undanúrslit 3. deildar karla en þá fóru fram seinni leikirnir í átta liða úrslitum.

Liðin sem síðan hafa betur í undanúrslitunum munu tryggja sér sæti í 2. deild að ári. Hér að neðan má sjá úrslit kvöldsins en innan sviga eru samanlögð úrslit úr báðum viðureignunum.

Berserkir - Hamrarnir/Vinir 1-1 (Samtals: 1-2)

BÍ/Bolungarvík - Ýmir 1-0 (Samtals: 2-2)

BÍ/Bolungarvík kemst áfram á útivallarmarki

Skallagrímur - Huginn 2-1 (Samtals: 3-2)

Sindri - KV 4-4 (Samtals: 6-6)

KV kemst áfram á fleiri mörkum á útivelli

Í undanúrslitum mætast Hamrarnir/Vinir - Skallagrímur annarsvegar og BÍ/Bolungarvík - KV hinsvegar. Fyrri leikirnir verða næsta laugardag en þeir síðari á þriðjudeginum eftir viku.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×