Ólafur: Lofa því að sækja á miðvikudaginn Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. október 2008 21:11 Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari og Pétur Pétursson, aðstoðarmaður hans. Mynd/E. Stefán
Ólafur Jóhannesson landsliðsþjálfari sagði eftir leik Hollands og Íslands í kvöld að það hefði margt hægt að gera betur í leiknum en að hann væri samt sáttur við heildarniðurstöðuna. „Það má alltaf gera betur. Mér fannst við byrja ekki nógu vel í leiknum. Við lágum of langt til baka og gerðum í raun ekki neitt nema að vera í vörn. Við ætluðum að gera meira," sagði Ólafur í samtali við Stöð 2 Sport eftir leik. „Stressið hefur örugglega haft sitt að segja. Þegar við fengum möguleika til að gera eitthvað virtist alltaf koma léleg sending. En ég var samt ekkert ósáttur. Það er ekki oft sem við fáum eins tækifæri og við fengum í dag gegn jafn sterkum andstæðingi," sagði hann. Það kom nokkuð á óvart að hann stillti Ragnari Sigurðssyni upp í stöðu hægri bakvarðar í fjarveru Grétars Rafns Steinssonar sem var meiddur. Ragnar var tekinn af velli í síðari hálfleik og Birkir Már Sævarsson færður í stöðu bakarðar. „Ragnar átti í vandræðum með sinn mann í upphafi leiksins. Hann átti að vera nær sínum manni og hann náði að bæta sig. Auðvitað er auðvelt að segja eftir á að ég hefði átt að setja Birki í bakvörðinn fyrr." „Við ræddum það svo í hálfleik að þora að færa annan miðjumanninn nær sókninni. Það gekk ágætlega í upphafi seinni hálfleiks en það fjaraði undan því og menn duttu aftur í skotgrafirnir. Þá var leiðin að hollenska markinu aftur orðin of löng." Næst mætir Ísland landsliði Makedóníu en sá leikur fer fram á Laugardalsvellinum á miðvikudaginn kemur. „Við stefnum að því að vinna þann leik. Leikurinn verður þó mjög erfiður enda alltaf erfitt að spila gegn Austur-Evrópuþjóð. En ég lofa því að sækja meira í þeim leik og fara með allt liðið framar á völlinn. Í dag var leiðin að marki andstæðingsins allt of löng."
Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira