Tveggja marka tap í Hollandi Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. október 2008 20:40 Gunnleifur Gunnleifsson átti mjög góðan leik í íslenska markinu í dag. Nordic Photos / AFP
Stjörnum prýtt hollenskt landslið vann tveggja marka sigur á Íslandi í undankeppni HM 2010 í kvöld, 2-0, á De Kuip-leikvanginum í Rotterdam. Joris Mathijsen kom Hollendingum yfir strax á fimmtándu mínútu leiksins og Klaas Jan Huntelaar bætti síðara markinu við á 61. mínútu. Leikurinn fór ekkert sérstaklega af stað hjá íslenska liðinu og þeir hollensku gengu á lagið og komust yfir. Fljótlega eftir það fór að birta til í íslenska liðinu og leikmenn byrjuðu að spila sín á milli og reyna að byggja upp sóknir. Síðasta stundarfjórðunginn í fyrri hálfleik og sá fyrsti í seinni hálfleik var mjög góður hjá íslenska liðinu. Liðið skapaði sér þó nokkur færi en mesta hættan kom þegar Eiður Smári Guðjohnsen, sem átti annars slakan dag, skaut í hliðarnetið úr aukaspyrnu rétt utan teigs. Huntelaar nýtti sér svo tækifærið þegar að íslensku varnarmennirnir sváfu á verðinum og komst einn gegn Gunnleifi Gunnleifssyni markverði og skoraði af öryggi. Það verður þó ekki við Gunnleif sakast í dag enda átti hann afar góðan dag og var meðal allra bestu leikmanna liðsins. Eftir það var alltaf ljóst í hvað stefndi og leikurinn fjaraði einfaldlega út. Sem fyrr segir var sigurinn sanngjarn en íslenska liðið fékk sín tækifæri í leiknum sem það hefði mátt nýta sér sumpart mun betur. Það er þó ljóst að hollenska liðið var einfaldlega of sterkt fyrir það íslenska. Hollensku leikmennirnir gerðu einfaldlega það sem þeir þurftu en alls ekkert meira en það. Kristján Örn Sigurðsson átti stórleik í íslensku vörninni og var einfaldlega besti maður vallarins. Flestir komust ágætlega frá sínu en tveir allra reynslumestu menn liðsins, Eiður Smári og Hermann Hreiðarsson, hafa yfirleitt spilað betur en í dag. Brynjar Björn Gunnarsson kom aftur inn í landsliðið eftir langvarandi meiðsli og átti góðan leik. Fylgst var með leiknum á Boltavakt Vísis og Fréttablaðsins og má lesa nánar um gang hans þar.
Mest lesið Hitti holu í höggi á fyrsta hring ævinnar Golf Hljóp lengra en nokkur annar íslenskur karlmaður hefur gert Sport Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Enski boltinn „Persónuleg mál sem ég þurfti að eiga við“ Körfubolti „Vonandi ekki okkar einkennismerki“ Körfubolti Uppgjörið: KR - Ármann 108-74 | Frystir í Frostaskjóli Körfubolti „Af öllum stöðum þá er KA-heimilið alltaf best“ Sport Veigar Páll í árs bann eftir fall á lyfjaprófi Körfubolti „Ég hef áhyggjur en ég er ekki áhyggjufullur“ Körfubolti Uppgjörið: Njarðvík-Valur 85-93 | Ólík staða eftir öruggan Valssigur Körfubolti Fleiri fréttir Svaf ekki í margar nætur áður en hann tók ákvörðunina um Arsenal Hituðu upp fyrir United-leikinn með því að bursta AC Milan Orri Steinn skoraði í Evrópudeildinni „Á morgun mun ég reima á mig takkaskóna í síðasta sinn“ Þrír Íslendingar í byrjunarliði Brann í Evrópusigri Sky Sports: Carrick mun stýra Man. Utd gegn Bournemouth Líf tilnefnd til tvennra verðlauna Matthías hættur hjá Val Vopnaðir ræningjar brutust inn á heimili fyrrum markmanns PSG Hverjir eru þessir 19 Íslendingar sem hafa spilað í Meistaradeildinni? Vill fá annan þjálfara eins og Amorim til að hreinsa til Belgarnir láta Elísabetu fara Utan vallar: Sjúklingurinn er að deyja Nagelsmann efstur á lista verði Carrick rekinn Sagði leikmönnum sínum að slaka á í lok leiksins Svona missti Aron markið sögulega Sjáðu jöfnunarmark Rice og stórtap Manchester United „Kevin sér opnar hraðbrautir þar sem aðrir sjá umferðarteppu“ Barcelona kærir PSG vegna móðgandi skilaboða Þurftu að biðja Infantino afsökunar „Það er augljóst að Kane á að vinna Ballon d'Or“ Diomande með frábært mark í sigri Real Madrid Kane stríddi löndum sínum en Arsenal fer heim með stig „Þetta voru meira en vonbrigði“ „Það er þjálfarans og starfsliðsins að meta það, ekki mitt“ Hákon með stoðsendingu en Lille við botninn eftir tap Martröð hjá Manchester United við Como-vatnið Selma Sól skoraði í bikarsigri Íslenskir dómarar í Sambandsdeild en Danir horfa á skjáinn Messi klæddist Como-treyju Sjá meira