Íslandsmeistararnir lágu á Kópavogsvelli 16. september 2007 18:00
Breiðablik setti toppbaráttuna í Landsbankadeild karla upp í loft í dag þegar liðið vann 4-3 sigur á FH í æsilegum leik á Kópavogsvelli. Heimamenn komust í 4-1 í leiknum en Íslandsmeistararnir gáfust ekki upp og skoruðu tvö síðustu mörkin. Nenad Zivanovic kom Blikum yfir eftir 12 mínútna leik. Auðun Helgason jafnaði metin fyrir FH-inga, en Prince Rajcomar skaut Blikum yfir aftur nánast á sömu mínútu. Þannig stóðu leikar í hálfleik og eftir aðeins sjö mínútna leik í þeim síðari kom Magnús Páll Gunnarsson Blikum í 3-1. Auðun Helgason varð svo fyrir því óláni að skora sjálfsmark þegar 25 mínútur voru eftir af leiknum, en Íslandsmeistararnir voru þó hvergi nærri búnir að gefast upp. Arnar Gunnlaugsson og Matthías Guðmundsson skoruðu með 8 mínútna millibili og minnkuðu muninn í eitt mark, en lengra komust FH-ingar ekki að þessu sinni. Nú munar því aðeins þremur stigum á FH og Val í toppbaráttunni og Valsmenn eiga leik til góða gegn Skagamönnum á morgun. Fylkir og Fram skildu jöfn 1-1 í Árbænum þar sem gestirnir komust yfir með 11. marki Jónasar Grana Garðarssonar á 42. mínútu, en Daninn magnaði Christian Christianssen jafnaði metin í blálokin. Loks skildu Keflavík og Víkingur jöfn í Keflavík 0-0 þar sem Guðmundur Viðar Mete fékk að líta rautt spjald í fyrri hálfleik í liði heimamanna. 16. umferðinni í Landsbankadeildinni lýkur annað kvöld með leik Vals og ÍA og þar geta Valsmenn velt FH-ingum af toppi deildarinnar í fyrsta sinn í háa herrans tíð. Stöðuna í deildinni má sjá hér til hægri
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hleraði leikhlé Norðmanna Handbolti Gísli gagnrýnir fyrirkomulagið á EM Handbolti Dagur hengdi hrakspá handboltasérfræðings upp á króatíska hótelinu Handbolti „Einn besti leikur sem maður hefur séð svakalega lengi“ Handbolti Stærð sigurs Íslands gegn Svíum veki upp spurningar Handbolti Danir komnir í undanúrslit en Þjóðverjar þurfa stig gegn Frökkum Handbolti Ótrúleg saga Viggós rifjuð upp í erlendum miðlum Handbolti Lamaður á motocrosshjóli Sport Nýjar upplýsingar um heilsufar Michaels Schumacher Formúla 1 Þjálfari Króata ósáttur við blaðamann Vísis Fótbolti Fleiri fréttir Berglind Björg ólétt Fram fær liðsstyrk úr Mosó og markvörðurinn framlengir Heiðdís leggur skóna á hilluna Víkingur og Þróttur mætast í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins Elísa fer frá Val til Breiðabliks Oliver hættur í fótbolta vegna meiðsla Rugluðust á nafni nýja leikmannsins Sigurður Bjartur á leið til Spánar? Stjarnan selur Adolf Daða til FH Þór/KA fær þrjá leikmenn frá Stólunum á fimm leikmanna degi Fyrirliði FHL er mættur í Laugardalinn Telma eltir þjálfarann í Garðabæinn Hringdu dag og nótt til að klófesta Guðmund: „Konan var að verða geðveik á þeim“ Bryndís Arna er komin heim og samdi við Breiðablik Gummi Tóta orðinn leikmaður ÍA Þróttur skellti KR í Reykjavíkurmótinu KR fær tvo unga Ganverja Breytingar hjá Breiðabliki „Á eftir bolta kemur barn“ Viðar Örn leitaði sér aðstoðar við áfengis- og spilafíkn Trúin eykst á Suðurnesjum með komu McLaughlin Blikar farnir að fylla í skörðin Víkingur og Breiðablik mætast í fyrsta leik Bestu deildarinnar Rafael Máni eltir rætur sínar upp á Skaga Tveir ungir varnarmenn til FH Kristín Dís áfram í herbúðum Blika Miðbær Reykjavíkur er Íslandsmeistari Snýr aftur til Íslands og tekur við ÍBV Róbert með þrennu í sigri KR Fram lagði Leiknismenn Sjá meira