Lífið

Kylie sögð vera hjónadjöfull

Kylie Minogue. Ástralska leikkonan er laus og liðug og hefur verið sökuð um að draga giftan mann á tálar
Kylie Minogue. Ástralska leikkonan er laus og liðug og hefur verið sökuð um að draga giftan mann á tálar

Ástralska söngkonan Kylie Minogue á undir högg að sækja í fjölmiðlum um þessar mundir en hún er sökuð um að hafa komist upp á milli leikstjórans Alexanders Dahm og eiginkonu hans, Lauru.

Fjölmiðlar birtu fyrir skömmu myndir af Kylie og Alexander í fríi í Chile þar sem þau léku við hvern sinn fingur. Í ljós kom hins vegar að Alexander þessi á von á barni með eiginkonu sinni, Lauru, eftir aðeins tvo mánuði og söngkonan smávaxna var ekki lengi að fá á baukinn fyrir að hafa táldregið giftan mann. Alexander sver hins vegar af sér allar sakir og segir að aðeins hafi verið um viðskiptaferð að ræða.

 

Oliver Martinez. Samband hans og Kylie sprakk skömmu eftir að hún hafði jafnað sig á brjóstakrabbameininu.

News of the World birti á sunnudaginn viðtal við Lauru þar sem hún beið í öngum sínum eftir manni sínum. „Ég hef enga ástæðu til annars en að trúa manninum mínum og segi þess vegna að hann á ekki ástarsambandi við Kylie," sagði Laura í símaviðtali við blaðið frá Mexikó-borg. „En þetta hefur hins vegar verið versta vika lífs míns og þegar ég á að vera njóta síðustu daganna áður en barnið fæðist þá er maðurinn minn sakaður um að sofa hjá einni stærstu stjörnu heims," bætti Laura við en þau hjónin eiga fyrir þriggja ára gamlan son. „Hann er búinn grátbiðja mig um að trúa ekki neinu sem skrifað er og segir ekkert vera í gangi milli hans og Kylie. Ég hef engan annan möguleika en að taka orð hans trúanleg," segir Laura.

Kylie er nýhætt með franska leikaranum Oliver Martinez og þá, eins og nú, neitaði hún að framhjáhald hefði verið orsökin. „Þau eru að vinna saman að verkefni en ég skal vera sú fyrsta til að viðurkenna að þessi orðrómur hefur virkilega tekið á," lýsir Laura yfir. „Það sem angrar mig samt mest er að útskýra fyrir bæði fjölskyldu og vinum að ekkert sé í gangi og mér þykir miður að Kylie skuli fá á sig þennan stimpil."






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.