Gibson í góðum málum 14. maí 2007 03:00 Tekinn Handtaka Gibsons vakti heimsathygli enda lét leikarinn niðrandi ummæli falla um gyðinga.
Ástralski leikarinn Mel Gibson virðist óðum vera að ná sér eftir erfitt tímabil og dómari í máli hans lýsti yfir ánægju með þróun mála. Gibson var handtekin fyrir rétt tæpu ári en hann var þá grunaður um að vera ölvaður undir stýri. Þegar lögreglumaður nálgaðist hann lét Gibson fúkyrði fjúka yfir gyðinga og náðust ummælin á myndband. Þetta vakti mikla reiði meðal áhrifamanna í Hollywood enda gyðingar valdamikill hópur í kvikmyndaborginni. Leikarinn baðst afsökunar og lýsti því yfir að hann hefði ekkert á móti gyðingum. „Þetta var áfengið að tala, ekki ég,“ sagði Gibson þá. Tekur sig á Mál Gibsons var tekið til umfjöllunar að nýju og virðist áströlsku stórstjörnunni ganga vel í sínum bata. Leikarinn var dæmdur í þriggja ára skilorðsbundið fangelsi, gert að fara í áfengismeðferð og borga sekt. Farið var yfir stöðu mála nýverið fyrir dómi í Kaliforníu og sagði dómarinn Lawrence Mira að hún hefði mikla trú á meðferðinni og að greinilegt væri að Gibson legði sitt af mörkum til að ná bata. Gibson var ekki viðstaddur yfirferðina yfir málið en lögfræðingur hans, Blair Berk, sýndi fram á að Gibson væri allur af vilja gerður og hefði varla sleppt úr fundi í meðferð sinni. Dómarinn Mira taldi þrátt fyrir allt að nauðsynlegt væri að Gibson myndi láta sjá sig næst. „Þannig að við séum öll á sama máli,“ sagði Mira. Talsmaður leikarans, Alan Nierob, lýsti því síðan yfir við AP-fréttastofuna að skjólstæðingi hans liði vel og að allt gengi samkvæmt áætlun. „Hann leggur mjög hart að sér,“ sagði Nierob.
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira