Sarkozy skorar á alþjóðasamfélagið 25. júní 2007 19:25
Forseti Frakklands skorar á alþjóðasamfélagið að sýna Súdönum hörku taki þeir ekki þátt í samvinnu um endalok átakanna í Darfur. Hann segir þögnina um stríðsglæpi í Darfur viðhalda átökum á svæðinu. Utanríkisráðherra Bandaríkjanna segir umheiminn hafa brugðist íbúum Darfurs. Ráðstefna um málefni Darfur hófst í París í morgun. Fulltrúar Bandaríkjamanna, Frakka, Kínverja og Egypta eru meðal þeirra sem sitja fundinn.Rúmlega 200 þúsund hafa látið lífið í átökunum í Darfur sem hófust árið 2003 og meira en tvær og hálf milljón hefur flúið heimili sín. Fyrir fundinn sagði Condoleezza Rice utanríkisráðherra Bandaríkjanna að heimurinn hefði brugðist íbúum Darfur. Nýverið samþykktu stjórnvöld í Súdan að hleypa nær 20 þúsund manna sameiginlegu friðargæsluliði Sameinuðu þjóðanna og Afríkubandalagsins inn í landið. Engu að síður er enn óttast að forseti Súdan, Omar al-Bashir eigi eftir að skipta um skoðun. Nicolas Sarkozy forseti Frakklands sagði að yfirvöld í Súdan yrðu að gera sér grein fyrir því að án samvinnu yrði þeim mætt af fullri hörku. Hingað til hefur aðeins sjö þúsund manna lið Afríkubandalagsins verið í Darfur. Sá fjöldi hefur ekki dugað til þess að binda endi á átökin eða vernda það fólk sem enn er á svæðinu. Enn eru íbúar Darfur myrtir í átökunum og erfitt hefur verið fyrir alþjóðasamfélagið að aðhafast vegna tregðu súdanskra stjórnvalda. Alþjóða stríðsglæpadómstóllinn gaf í síðasta mánuði út fyrstu handtökuskipanir vegna þjóðarmorða í héraðinu á árunum 2003 til 2004.
Mest lesið Fólki ráðlagt að fylgjast vel með veðurspám Veður Nauðgaði konu sem hann hitti í körfubolta skömmu áður Innlent „Svona eldur kviknar ekkert af sjálfu sér“ Innlent Sýknaður af nauðgun þótt konan þætti trúverðug Innlent Níutíu milljóna tjón á nokkrum vikum Innlent Hafni hundruðum þúsunda fyrir frídaga í fyrsta sinn frá 2014 Innlent Trump vill ekki flýta sér Erlent Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Erlent Kvarta til ESA og Umboðsmanns Alþingis vegna milliverðlagningar útgerðarfyrirtækja Innlent „Ekki í lífshættu“ Innlent Fleiri fréttir Rubio vongóður um vopnahlé Arftaki 757 aftur á teikniborði Boeing Trump vill ekki flýta sér Ofurhljóðfrárri eldflaug skotið að Úkraínu Meintur byssumaður 21 árs góðkunningi leyniþjónustunnar Skothvellir við Hvíta húsið Bandarískir sendimenn mælist til þess að Trump sé hunsaður Mjakist nær samkomulagi Kratar fá umboðið á ný og hyggja á miðjuvinstri stjórn Níutíu látnir eftir sprengingu í kolanámu Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Sjá meira