Erlent

Vilja loka Guantanamo

Guantanamo
Guantanamo MYND/AFp
Bandarísk stjórnvöld leita nú leiða til að loka Guantanamo-fangelsinu. Mikill þrýstingur er á stjórnvöld í Washington að loka því en það þykir vera ljótur blettur á mannréttindamálum í Bandaríkjunum.

"Við erum meðvituð um að Guantanamo-fangelsið hefur verið gagnrýnt víðsvegar um heiminn og það veldur stjórninni miklum áhyggjum," sagði John Bellingar lögfræðiráðgjafi Bandaríkjastjórnar.

Dano Perino, talsmaður Hvíta hússins, sagði í dag að verið væri að vinna í því að loka fangelsinu en finna þyrfti leið til að tryggja örugga gæslu fanganna. Einnig þyrfti að sjá til þess að komið yrði fram við þá á sómasamlegan hátt.

Stjórnvöld í Bandaríkjunum hafa ítrekað haldið því fram að þau noti fangelsið vegna þjóðaröryggis en nú virðist þeim hafa snúist hugur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×