Sandefjord gerði Kjartani Henry tilboð Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. desember 2007 10:40 Kjartan Henry í baráttu við Axel Witsel, leikmann belgíska U-21 landsliðsin í síðasta mánuði. Nordic Photos / AFP
Kjartan Henry Finnbogason sagði í samtali við Vísi að norska 1. deildarliðið Sandefjord hafi gert honum samningstilboð, rétt eins og annað lið á Norðurlöndunum. Vísir hefur einnig heimildir fyrir því að Valsmenn hafi einnig gert honum tilboð en því vildi Kjartan Henry hvorki játa né neita. Það mátti þó heyra á Kjartani að hann væri ekki spenntur fyrir tilboði Sandefjord. „Ég vil ekki fara í atvinnumennsku bara til að fara í atvinnumennsku. Ef ég fer er það vegna þess að það vekur áhuga minn.“ Kjartan hefur gerst víðförull síðan hann fór frá Celtic í sumar og segir hann að með því hafi hann gert ákveðin mistök. „Ég ætla nú að taka þessu með ró og velja þá kosti sem mér finnst áhugaverðastir,“ sagði hann. Kjartan Henry hefur staðið sig vel með U-21 landsliði Íslands og fengið fyrirspurnir víða að, bæði frá Norðurlöndunum sem og frá tveimur liðum í Belgíu. „Það er nú frí í flestöllum deildum í Skandinavíu og ætla ég að sjá til hvað gerist þegar félagaskiptaglugginn opnar í janúar. En ég útiloka ekki neitt, heldur ekki að spila á Íslandi.“ Hann segir þó að krafa Celtic um uppeldisbætir flækir málin fyrir sér. „Celtic vill fá 150 þúsund evrur fyrir mig sem mér finnst vera of mikið. Umboðsmaður minn, Ólafur Garðarsson, hefur unnið í því að lækka þessa upphæð en þeir eru ekkert allt of liðlegir. Þeir hafa þó samþykkt að ef ég fer til íslensks liðs vilja þeir aðeins fá tuttugu þúsund pund. Það gæti því komið til greina að spila á Íslandi.“
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Slagsmál og allt á suðupunkti þegar Fenerbahçe sló út Lyon Fótbolti Náði að plata Óskar Örn Sport „Við lögðum leikinn nákvæmlega svona upp“ Fótbolti Íslenski hópurinn sem fer á Ólympíuleika ungmenna Sport Karólína og Cecilía byrjuðu báðar í tapi Fótbolti Liverpool snýr sér að Sarr eftir að Brighton hafnaði tilboðum Enski boltinn Savinho skoraði í sínum fyrsta leik Enski boltinn Nicolas Jackson á leið til Aston Villa Enski boltinn Arna, Fanney og Vålerenga með öruggan sigur Fótbolti Tómas Bent fékk rautt en Hearts fór áfram eftir vítakeppni Fótbolti Fleiri fréttir Ræddu innkomu Eiðs Smára: „Mér finnst stórfurðulegt að Hallgrímur sé enn þá þarna“ Tókust á í beinni um atvikið umdeilda upp á Skaga Ætlar að rústa markametinu og skora 30 mörk Létu leikmenn og stjórn Stjörnunnar heyra það: „Skandall, fáránlegt og ljótt“ Sjáðu sjö marka veisluna í sigri Fram Kópavogi í gær Kom inn á fyrir KR aðeins 14 ára „Maður var aldrei alveg rólegur“ Uppgjörið: Breiðablik - Fram 3-4 | Fram kláraði dæmið í fyrri hálfleik Ágúst Orri mættur í hollensku úrvalsdeildina Hræðileg nýting Blika í hornum: „Eins og þetta sé ekkert æft“ „Fæ skítinn í fangið strax frá fyrsta degi“ Átta marka veisla í fyrsta leik Eiðs Smára og Víkingsvélin mallar áfram Uppgjörið: Víkingur - Valur 2-0 | Frábærar tíu mínútur voru nóg í Víkinni Kvaddi stuðningsmenn Víkings: „Það er hluti af mér núna“ „Aron er frábær leikmaður en ég vil samt fá meira frá honum“ Uppgjörið: KA - KR 3-5 | Aron með þrennu fyrir norðan „Fiðringurinn breyttist smá í að kúgast annað slagið“ Haukar komnir upp í Lengjudeildina Uppgjörið: ÍA - FH 1-1 | Jafnt á Skaganum Uppgjörið: Keflavík - ÍBV 1-0 | Keflvíkingar tengdu saman sigra í fyrsta skipti í sumar Uppgjörið: Stjarnan - Þór 4-2 | Stjarnan sýndi sparihliðarnar með nýja menn við stjórnvölinn Sara skoraði tvö og Haukar fóru upp í annað sætið Njarðvíkingar stöðvuðu sigurgöngu Húsvíkinga Ísfirðingar geta andað léttar HK vann enn einn heimaleikinn og Fylkir flengdi Grindavík Sjáðu Bergdísi bjarga botnliðinu, kraftaverk Lillýar og óheppni fyrirliðans „Kærkomið að fá eitt svona mark“ „Ég skora náttúrulega ekki oft þannig að þetta er eiginlega kraftaverk“ „Ég þekki náttúrulega Ásdísi svolítið vel“ Sjáðu Eið Smára stýra sinni fyrstu æfingu með KA Sjá meira