Lífið

Björk tilnefnd til Grammy verðlauna

Björk Guðmundsdóttir er tilnefnd til Grammy verðlauna fyrir nýja plötu sína Volta. Hún er ekkert óvön því, en þetta er þrettánda tilnefning Bjarkar. Kanye West og Amy Winehouse hljóta flestar tilnefningar í ár. West fær alls 8 tilnefningar og Amy sex slíkar. Amy er meðal annars tilefnd fyrir bestu plötuna, besta lagið og besti nýi listamaður ársins. Kayne er m.a. tilnefndur fyrir bestu rap-plötu ársins. Athygli vekur að Bruce Springsteen fær enga tilnefningu í ár en talið var að plata hans Magic myndi sópa að sér tilnefningum.





Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.