Íslenski boltinn

U19 landsliðið vann Belga

Elvar Geir Magnússon skrifar
Rafn Andri Haraldsson og Jósef Kristinn Jósefsson voru báðir að leika með U19 landsliðinu í kvöld. Þeir mættust í 1. deildinni í sumar.
Rafn Andri Haraldsson og Jósef Kristinn Jósefsson voru báðir að leika með U19 landsliðinu í kvöld. Þeir mættust í 1. deildinni í sumar. Mynd/Víkurfréttir

Íslenska U19 landsliðið náði heldur betur að snúa við blaðinu í kvöld. Eftir að hafa tapað illa 5-1 fyrir Englendingum í fyrsta leik sínum í undanriðli fyrir Evrópumótið vann það Belga 3-1 í kvöld.

Gylfi Þór Sigurðsson skoraði fyrsta mark Íslands gegn Belgíu í kvöld eftir aðeins tveggja mínútna leik en hann er á mála hjá Reading á Englandi. Kristinn Jónsson, leikmaður Breiðabliks, og Jósef Kristinn Jósefsson hjá Grindavík skoruðu hin mörkin.

Belgar unnu Rúmena örugglega í fyrsta leik sínum en lokaleikur íslenska liðsins í riðlinum er gegn Rúmenum á miðvikudag. Með sigri þar kemst það upp úr riðlinum. Í kvöld vann England 6-0 sigur á Rúmeníu en riðillinn fer fram á Englandi.

Staðan í riðlinum fyrir lokaumferð:

England - 6 stig

Ísland - 3 stig

Belgía - 3 stig

Rúmenía - 0 stig

Byrjunarlið Íslands:

Óskar Pétursson (m)

Eggert Rafn Einarsson

Kristinn Jónsson

Hólmar Örn Eyjólfsson

Fannar Þór Arnarsson

Rafn Andri Haraldsson

Viktor Unnar Illugson

Aron Einar Gunnarsson, fyrirliði

Guðmundur Kristjánsson

Gylfi Þór Sigurðsson

Björn Bergmann Sigurðsson




Fleiri fréttir

Sjá meira


×