Erlent

Madeleine: Nýr fulltrúi tekur við rannsókn

MYND/AFP
Paulo Rebelo einn virtasti rannsóknarlögrelumaður í Portúgal hefur tekið yfir rannsókn málsins á hvarfi Madeleine McCann. Hann tekur við af Goncalo Amaral sem var rekinn eftir að hann ásakaði foreldra stúlkunnar um að ráðskast með bresku lögregluna.

Rebelo hefur unnið að nokkrum stórum rannsóknum sem fengu mikla fjölmiðlaumfjöllun, þar á meðal mál þar sem grunur var um barnaklám á sambýli fyrir börn á vegum ríkisins. Búist er við því ða hann flytji til suðurhluta Portúgal þaðan sem Madeleine hvarf 3. maí síðastliðinn. Hann hefur störf innan nokkurra daga.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×