Sport

Powell setti nýtt heimsmet í 100 metra hlaupi

Elvar Geir Magnússon skrifar
Asafa Powell bætti heimsmetið.
Asafa Powell bætti heimsmetið.

Asafa Powell, hlauparinn frá Jamaíka, afrekaði það í dag að setja nýtt heimsmet í 100 metra hlaupi. Hann hljóp 100 metrana á 9,74 sekúndum á móti sem fram fór í Rieti á Ítalíu.

Powell átti sjálfur fyrrum heimsmetið ásamt Justin Gatlin en það var 9,77 sekúndur. Hann bætti það því um 3/100 úr sekúndu í dag.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×