Erlent

Hákarl veldur skelfingu í Queens

Tveggja metra langur hákarl olli töluverðri skelfingu á vinsælli baðströnd við hverfið Queens í New York um helgina. Strandverðir ráku alla baðgesti upp á land um leið og bakuggi hákarlsins sást skera vatnið rétt fyrir utan fjöruborðið í gærdag.

Samkvæmt fregnum í bandarískum fjölmiðlum fór svo að hákarlinn synti í land, barðist um í fjöruborðinu, en komst svo aftur í sjóinn. Þessi hegðun bendir til að eitthvað hafi amað að hákarlinum.

Strandverðir við Rockaway-ströndina tóku enga áhættu eftir að hákarlinn var kominn í sjóinn aftur og lokuðu ströndinni það sem eftir lifði dagsins. Það mun mjög sjaldgæft að hákarlar sjáist svo nálægt landi á þessum slóðum.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×