Erlent

Geimfarinn ber við tímabundinni geðveiki

Lisa Nowak
Lisa Nowak MYND/Getty
Lögfræðingar geimfarans Lisu Nowak hyggjast bera við tímabundinni geðveiki þegar hún mál hennar verður tekið fyrir í næsta mánuði. Nowak, sem er 44 ára gömul gift þriggja barna móðir, var ákærð fyrir tilraun til mannráns, líkamsáras og þjófnað.

Í febrúar í fyrra keyrði Novak um 1600 kílómetra leið frá Texas til Flórída, til að hitta konu sem hún taldi keppinaut sinn um ástir geimskutluflugmannsins Bill Oefelein.

Hún var dulbúin í rykfrakka með hárkollu og klædd í fullorðinsbleyju, til að þurfa ekki að stoppa á leiðinni.

Hún var handtekin á Orlando flugvelli, eftir að hafa ráðist á konuna, herflugmanninn Colleen Shipman, með piparúða. Í bíl hennar fundust meðal annars loftbyssa, hnífur, og afrit af tölvupóstum sem fóru á milli hennar og Oefelein.

Í póstunum kom fram að þau hefðu átt í tveggja til þriggja ára löngu sambandi, sem hefði lokið stuttu áður þegar Oefelein og Shipman felldu hugi saman.

NASA sagði henni upp í kjölfar atviksins, en sagðist með því ekki vera að leggja dóm á sekt hennar eða sakleysi.

Lögfræðingar hennar segja hana hafa þjáðst af ýmsum andlegum kvillum, þunglyndi og svefnleysi fyrir atvikið.

Novak á yfir höfði sér allt að lífstíðarfangelsi verði hún fundin sek.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×