Erlent

52 tveir látnir eftir bardaga í Kerbala

52 létust og 260 slösuðust í hörðum bardögum í írösku borginni Kerbala í dag. Þar börðust öryggissveitir stjórnvalda við byssumenn en í borginni fer nú fram trúarhátíð sjíta í borginni. Hundruð þúsunda pílagríma hafa komið til borgarinnar síðustu daga.

Sjíta klerkurinn Moqtada Al-Sadr gaf nú fyrir stundu út yfirlýsingu þar sem hann biður fólk að halda stillingu sinni þrátt fyrir ofbeldið. Heimildir herma að hörðustu bardagarnir fari fram við tvo merka helgidóma í borginni.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×