Erlent

Talibanar tala aftur um afdrif gísla

Þórir Guðmundsson skrifar

Fulltrúar talibana og Suður-kóreustjórnar hófu samningaviðræður á ný í morgun um afdrif nítján gísla frá Suður-Kóreu, sem talibanar hafa í haldi í Afganistan.

Tveir foringjar talibana komu til fundarins í morgun í bílum Alþjóða Rauða krossins. Þeim hefur verið heitið griðum á meðan viðræðurnar standa yfir.

Talibanar krefjast þess að um tvö hundruð suður-kóreskir hermenn í landinu fari burt og að talibanar í fangelsi stjórnvalda í Kabúl verði látnir lausir.

Upphaflega tóku talibanar 23 gísla en þeir hafa myrt tvo þeirra og sleppt tveimur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×