Hafa hert rannsókn sína á upptökum skógarelda 27. ágúst 2007 18:55
Yfirvöld í Grikklandi hafa hert rannsókn sína á upptökum skógarelda sem geisað hafa þar í landi síðan á föstudag. Að minnsta kosti sextíu manns hafa látið lífið í eldunum. Björgunarsveitarmenn hafa unnið hörðum höndum að því að bjarga þorpsbúum sem orðið hafa innlyksa vegna eldanna. Íbúarnir hafa margir hverjir fyllst skelfingu og óttast það versta þar sem björgunarsveitarmenn hafa oft átt erfitt með að komast að svæðunum sökum eldanna. Þúsundir hafa þurft að flýja heimili sín en neyðarástandi hefur verið lýst yfir í landinu. Slökkviliðsmönnum tókst í nótt að forða fornu borginni Ólympíu frá því að verða eldinum á bráð. Yfirvöld hafa hert rannsókn sína á upptökum eldanna og hafa heitið allt að nítíu milljónum íslenskra króna fyrir upplýsingar sem leitt gætu til handtöku þeirra sem ábyrgð bera á eldunum. Svo virðist sem rekja megi upphaf eldanna til íkveikju og að kveikt hafi verið í á fleiri einum stað. Sérstök sveit lögreglumanna, sem berst gegn hryðjuverkum, hefur fengið það hlutverk að yfirheyra þrjátíu og tvo einstaklinga sem handteknir hafa verið grunaðir um að tengjast málinu. Talið er að eldar logi í um helmingi landsins og fylgjast óttaslegnir íbúarnir með sjónvarpsfréttum af björgunaraðgerðum. Margir treysta á að fá upplýsingar um gegnum fjölmiðla um hvort hjálp berist þeim á næstunni eða hvort eldarnir séu að breiðast út í átt að heimilum þeirra. Íbúar Grikklands eru margir reiðir yfirvöldum fyrir að hafa ekki gert nóg til að tryggja öryggi þeirra. Yfirvöld segjast vera að reyna að gera hvað sem þau geti til að ná tökum á eldunum.
Mest lesið Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Erlent Hildur vilji Einar í meirihluta hvernig sem fer Innlent Stígur fram sem „alræmdur faðir“ í Vesturbænum Innlent Nýtt húsnæði ráðuneytis Ingu kostar níu milljónir á mánuði Innlent Námsbækur barnanna búnar til „löngu áður en mamma og pabbi fæddust“ Innlent Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Erlent Allt veltur á því hvort handaband teljist handsal Innlent „Þetta hjól er næstum alltaf tómt“ Innlent Undrandi á að Tómas fengi ekki að verja sig Innlent Var í geðrofi þegar Vinafélag Íslands-Norður-Kóreu var stofnað Innlent Fleiri fréttir Spjallað í Reykjavík á meðan drónarnir dynja á Kænugarði Sprengdu fljúgandi furðuhlut í loft upp Vilja skipa erindreka en vita ekki hvert erindið er Borgaraleg stjórn virðist úr sögunni Rutte segir ríka Evrópu reiða sig um of á Bandaríkin Birta loks umdeilda „krufningu“ á framboði Harris Stjórnvöld í Íran og Óman ræða sameiginlega gjaldheimtu á sundinu Útvegaði njósnurum gögn um óvini Rússa Íbúar í Alberta greiða atkvæði um aðskilnað frá Kanada Trump sendir 5.000 hermenn til Póllands Veit ekki hvort hann hafi misst tökin á öldungadeildinni Bein útsending: Nýsköpunarverðlaun Norðurlandanna Hugmyndir kjósenda um innflytjendur ekki í takt við raunveruleikann Ellefu Evrópuríki auglýsa eftir hættulegum dæmdum glæpamönnum Ben-Gvir fordæmdur fyrir framkomu sína gagnvart aðgerðasinnum Raúl Castro ákærður fyrir morð í Bandaríkjunum Trump segist munu ræða við forseta Taívan Hafa þurft að draga verulega úr olíuframleiðslu vegna árása Sat inni í 37 daga fyrir að grínast með morðið á Kirk Lögreglumenn vilja stöðva skaðabótasjóð Trumps Jarðskjálfti skók Kaupmannahöfn Segir samstarf Kína og Rússlands stuðla að stöðugleika í heiminum Hugðust frelsa Ahmadinejad og koma honum til valda „Bretland var gert fyrir loftslag sem heyrir sögunni til“ Trump tókst að fella Massie Játaði loksins að hafa myrt Emilie Meng fyrir áratug Streymdu árásinni í beinni á netinu Erindreki Trumps fékk skýr skilaboð frá Grænlendingum Bannar Skattinum að rannsaka Trump og fjölskyldu Pútín lentur í Peking Sjá meira