Lúkasarmálið smitandi Jón Hákon Halldórsson skrifar 20. ágúst 2007 15:41 Lúkas slapp betur en Arkibal.
Hundavinir í Køge í Danmörku hafa lofað því sem nemur 200 þúsund íslenskum krónum í verðlaun fyrir upplýsingar um hrottalegt hundsdráp fyrir helgi.Talið er að hundurinn, sem gegndi kallinu Arkibal, hafi verið stunginn margsinnis með skjúfjárni eða hníf. Hann fannst dauður við Rishøjhallerne i Køge á föstudagsmorgun, eftir því sem fram kemur í Jyllands-Posten. Hundurinn var í eigu hjónanna Grethe og Svend Jespersen. Þau segja að fjölmargir hafi haft samband við sig og boðið fram aðstoð eftir að fréttir bárust af voðaverkinu. Þau hafi ætlað að heita 10 þúsund krónum á þann sem gæti gefið upplýsingar um ódæðisverknaðinn. Ókunnir aðilar hafi síðan ákveðið að leggja þeim lið. Þannig hafi aðstandendur vefsíðanna dogsdating.dk og klikkershoppen.dk ákveðið að heita 25 þúsund krónum hvor fyrir upplýsingar um ódæðismennina. DKK hafi boðið 30 þúsund krónur og nágrannar eigendanna hafa boðið 10 þúsund krónur. Síðast en ekki síst hafi ónafngreindur hundavinur boðið 100 þúsund krónur. Jeppersen hjónin tóku gleði sína á ný til skamms tíma þegar þau fengu nýjan hund á laugardag. En Adam var ekki lengi í Paradís. Hundurinn fékk bæði exem og eyrnasýkingu og er fársjúkur að sögn eigenda. Honum verður því lógað. Lögreglan í Køge leitar nú að pari sem gæti tengst drápinu hrottalega en sú leit hefur ekki borið árangur.
Mest lesið Díselþjófar staðnir að verki: „Þetta er búið að kosta okkur milljónir“ Innlent Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl Erlent „Ég held að það sé nú best að anda rólega“ Innlent Reyndist fjölmennt matarboð „þar sem gleðin var við völd“ Innlent Komst ekki heim frá Íran fyrr en mánuði eftir árásirnar Innlent Skógasafn vill Gunnfaxa en beðið svara eigenda Innlent „Það nægir ekki ESB að rústa eigin iðnaðarframleiðslu“ Innlent Áhugi ungra stráka á Druslugöngunni kom skemmtilega á óvart Innlent Leita leiða til að kveða ranglega útgefnar sektir í kútinn Fréttir Segir eðlilegast að strandveiðiheimildir verði fyrir utan alla potta Innlent Fleiri fréttir Forsætisráðherra segir að átökin gætu færst nær stríði Biðst afsökunar en segist hvorki þuklari, flassari né dónakarl „Góðu fréttirnar eru að það sem hann segir skiptir engu máli“ „Tími til kominn að ljúka stríðinu á Gasa“ Lýsa yfir herlögum í Taílandi Ísraelsþing ályktar um innlimun Vesturbakkans Jeremy Corbyn leiðir nýja stjórnmálahreyfingu Þrýstingur eykst á Starmer að hann fari sömu leið og Frakkar Samninganefndir ræða fund leiðtoganna Karlmaður á fertugsaldri handtekinn fyrir sprengjuhótunina Ísraelskur ráðherra kynnir áform um þjóðernishreinsun á Gasa Epstein-skjölin og Trump: Eitthvað virðist rotið í Danaveldi Frakkland viðurkennir Palestínu sem sjálfstætt ríki Hjálparstarf og fréttaflutningur í uppnámi vegna hungursneyðar Alls 81 barn látist úr hungri Maxwell boðuð á fund með fulltrúum Trump-stjórnarinnar Columbia greiðir tvö hundruð milljóna dala sáttagreiðslu Selenskí dregur í land Danskri sjónvarpsstöð barst sprengjuhótun Heitir bótum en stendur við lögin umdeildu Rússnesk farþegaflugvél hrapaði og á fimmta tug talinn af Níu látnir er landamæradeilur blossa upp Höfða mál vegna fullyrðinga um að forsetafrúin sé karlmaður Trump látinn vita að nafn hans væri í Epstein-skjölunum Málinu lokið og Kohberger sleppur við dauðarefsingu Hvalavinurinn ekki lengur eftirlýstur Ríki mega kæra hvert annað fyrir loftslagsbreytingar Epstein mætti í brúðkaup Trumps Selenskí sagður stíga skref í átt að alræði Norskur maður ákærður fyrir njósnir í þágu Rússa og Írana Sjá meira