Norska prinsessan tjáir sig um englana Óli Tynes skrifar 11. ágúst 2007 20:00 Marta Lovísa, prinsessa.
Marta Lovísa Noregsprinsessa hefur loks tjáð sig um englana sína. Það vakti mikla athygli um allan heim þegar hún lýsti því yfir að hún gæti bæði talað við engla og dýr. Nokkru síðar tilkynnti hún að hún væri farin í tveggja vikna veikindafrí. Það var rakið til álags á henni eftir hina gríðarlegu fjölmiðlaumfjöllun um englana. Í viðtali við norska ríkissjónvarpið sem sent verður út í kvöld er hún auðvitað spurð um englana. Og hvernig þeir líta út. Prinsessan sagði að þeir væru ekki líkamlegir í venjulegum skilningi. Þeir væru bara kærleikur. Sendiboðar Guðs til mannanna. Marta Lovísa lagði áherslu á að það væri jafn misjafnt og mennirnir væru margir hvernig þeir skynjuðu engla. Það væri engin ein föst ímynd. Sumir þekktu þá, sumir sæju þá og sumir heyrðu í þeim. Prinsessan staðfesti að englar geti haft vængi, eins og á jólakortunum. Það færi allt eftir því hvernig menn sæju þá. Hún sagði að fyrir sér persónulega væru englarnir eins og ljósverur. Hún skynji þá sem mikla nærveru og kærleiksstuðning. Þannig horfi þeir við henni, og aðrir megi hafa þær skoðanir sem þeir vilja á því.
Erlent Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Erlent Fleiri fréttir Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Sjá meira