Tveir látnir í flóðunum í Bretlandi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 26. júlí 2007 12:25
Tveir létust í flóðunum í Bretlandi þegar þeir reyndu að dæla vatni úr íþróttahúsi í Gloucesterskíri og eins er saknað síðan á laugardag. Enn eru 340 þúsund manns án neysluvatns og óttast er að skítugt flóðvatnið geti stofnað heilsu fólks í hættu. Talið er að mennirnir tveir hafi látist vegna eiturgufu úr bensínvél sem þeir notuðu við að dæla vatninu út úr Rugbyklúbbi í Tewkesbury. Ekki er vitað um frekari mannskaða í flóðunum, en eins er saknað frá því á laugardag. íbúar Oxfordskíris og Berkshire anda nú léttar þar sem vatnsmagn minnkaði töluvert í ánni Thames í nótt, en margir reyndu þó að fyrirbyggja að flóðið næði inn á heimili þeirra með því að byggja varnarveggi úr sandpokum. Vatnsfyrirtækið Severn Trent segir að drykkjarhæfu vatni verði komið á til um 10 þúsund heimila í Tewkesbury í dag, en enn gæti tekið tvær vikur að koma neysluvatni á tæplega fjörtíu þúsund heimili. Þá tilkynnti fyrirtækið að herinn yrði ábyrgur fyrir að fylla á færanlega vatnsskammtara á götum flóðasvæðanna, en fyrirtækið hafði ekki við þar sem þeir tæmdust jafnóðum. Gordon Brown forsætisráðherra lagði í gær ofuráherslu á að vatni yrði komið á til allra heimila sem allra fyrst. Eitthvað hefur borið á því að fólk hamstri vatn og reyni svo að selja það á uppsprengdu verði. Yfirvöld vara fólk við að komast í beina snertingu við flóðvatnið sem er blandað skólpi og eiturefnum, en segja þó ekki bráða hættu á sjúkdómum. Metúrkoma var í Bretlandi í júnímánuði og stefnir einnig í met í þessum mánuði. Úrkoman síðustu daga hefur meðal annars stofnað kartöfluuppskeru á svæðinu í hættu. Enn rignir á flóðasvæðunum, en búist er við um 10 millimetra úrkomu í dag.
Mest lesið Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Erlent Tólf prósent Íslendinga á bótum Innlent Vantaði fimmtán tennur eftir að þau sviku út rafræn skilríki og neyddu í flug Innlent Hraðlygni leiðsögumaðurinn ekki einsdæmi: „Ekki að borga skatta, ekki að borga skyldur“ Innlent Næsta skref að úttekt verði gerð á umfangi bælingarmeðferða Innlent Brynjar ráðinn korter í kosningar Innlent Bændur á loðnuvertíð til að eiga fyrir áburðinum Innlent Sagði frá ofbeldinu í fyrsta skipti Innlent Fleiri fréttir Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Klerkurinn felldur í fyrstu lotu Stríðið muni halda áfram út vikuna Trump: Khamenei látinn Fjöldi látinn eftir að herþota hafnaði á hraðbraut Sjá meira