Herinn kallaður til vegna flóða í Bretlandi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 21. júlí 2007 19:17
Óveður og úrhellisrigning í gærkvöldi og nótt orsökuðu flóð á stórum svæðum í Bretlandi. Algjört umferðaröngþveiti skapaðist á helstu hraðbrautum Englands. Fjöldi ökumanna og farþega þurfti að gista í bílum sínum en helgin er ein mesta ferðahelgi sumarsins. Herinn og björgunarsveitir hafa unnið að því í allan dag að koma fólki til hjálpar. Svæðið sem verst varð úti í flóðunum var Gloucesterskíri þar sem enn er unnið að því að bjarga fólki úr bílum sem sitja fastir í vatnselg. Hundruð ökumanna sátu einnig fastir í bílum sínum í nótt eftir að hellirigning lokaði M5 hraðbrautinni. Sumir þurftu að dúsa í bílunum í allt að tuttugu klukkustundir, margir án vatns og matar og enn situr fjöldi bifreiða fastur á hraðbrautinni. Skólaleyfi hófust í landinu fyrir helgi og virðist slæm spá ekki hafa hindrað fjölskyldufólk í að leggja í hann, en þetta er ein mesta ferðahelgi sumarsins. Foreldrar sem festust í umferðinni lentu því í því að þurfa einhvern veginn að hafa ofan af fyrir börnunum í óveðrinu. Sumir neyddust til að halda kyrru fyrir í bílum víða á svæðinu, en margir yfirgáfu þá og leituðu í neyðarskýli þar sem um tvö þúsund manns gistu í nótt. Sky fréttastofan greindi frá því að barn hafi fæðst í bíl sem var fastur í umferðaröngþveitinu. Lestarsamgöngur eru einnig í lamasessi á sumum svæðum. Neyðarlínan fékk yfir sextán hundruð neyðarsímtöl á níu klukkustundum, það eru fimmfalt fleiri símtöl en vanalega.Á sumum stöðum í Bretlandi var úrkoman á nokkrum klukkutímum jafn mikil og í heilum mánuði.Gordon Brown forsætisráðherra sagði viðbrögð björgunarsveita og hersins hafa verið til mikillar fyrirmyndar.Gefin hafði verið út viðvörun til ökumanna um að vera sem minnst á ferðinni. Áfram er spáð mikilli rigningu og slæmu veðri og hafa verið gefnar út á annan tug flóðviðvarana.
Mest lesið Lofar bót eftir að varað var við honum: „Rangt af mér og á því biðst ég afsökunar“ Innlent Nýjar reglur í lauginni og Björn rekinn á dyr Innlent Fundu blóðuga exi og kaðal eftir að kærastinn var handtekinn Innlent Fékk nóg og er hættur á Facebook Innlent „Þetta er fullkomið áfall“ Innlent Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Erlent „Nú er þessi sleggja að koma fram“ Innlent „Síðan er ég bara með hreindýrskálf að lykta af rassinum á mér“ Innlent Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Erlent Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Erlent Fleiri fréttir Hnífjafnt og möguleiki á að úrslit ráðist ekki fyrr en í næstu viku Munurinn minnkar í nýrri spá Vinstri blokkin leiðir í útgönguspám „Það er mjög jafnt á milli blokkanna“ Óboðinn gestur gripinn við heimili Harris Vilja öll greiða atkvæði um að kljúfa sig frá Bretlandi Forstjórar gervigreindarfyrirtækja segja hættu á ferðum og hægja þurfi á þróun Lokuðu einni mikilvægustu olíuleiðslunni „Ekkert sem gat bjargað þessu“ Látin jafngömul og móðir hennar sem var myrt af föðurnum Þingkosningar í Svíþjóð: Stjórnin riðar til falls en að mynda nýja gæti reynst erfitt Minnst 44 slasast og ein í lífshættu eftir lestarslys í Frakklandi Systir Haraldar er látin Dönsk kona ákærð fyrir að verða nýfæddum börnum sínum að bana Stefna kanslaranum fyrir meiðyrði um Valkost fyrir Þýskaland Gerðu drónaárásir á verslunarmiðstöð Tók konu hálstaki sem söng með á söngleik 25 ár frá 9/11: Ólíkar útgáfur Trumps af deginum Rússar gómaðir með leynilega sæstrengjaklippu Kanna hvort Kim eigi son Biður dómara um að hlífa Clancy við öðrum réttarhöldum Miklar hækkanir á olíumörkuðum í dag Reyndi að vara við að flugvélin færi of hratt Tugir látnir í eldsvoða í flutningaskipi í Kína Boðar til skyndikosninga til að lægja öldurnar í Serbíu Ætli að gefa öllum þúsundir dollara ef repúblikanar sigra Játar aðild að einu stærsta Bitcoin-þjófnaðarmáli sögunnar Heitasta sumarið í Vestur-Evrópu Pakistanar sögðu klerkastjórninni að koma böndum á Húta Viðurkenndi efasemdir: „Ég ætla samt ekki að sýkna hana“ Sjá meira