Segir frummatsskýrslu alsendis ófullnægjandi 29. júní 2007 10:02 Frá Helguvík. MYND/Pjetur
Landvernd telur frummatsskýrslu vegna álvers í Helguvík alsendis ófullnægjandi til frekari málsmeðferðar og gagnrýnir hversu mikið álverið muni menga, eða 40 prósentum meira en álver Alcoa í Reyðarfirði. Landvernd hefur unnið umsögn um frummatskýrslu á umhverfisáhrifum vegna álversins og segir skýrsluna aðeins fjalla um lítið brot af þeim umhverfisáhrifum sem óhjákvæmilega myndu fylgja álveri í Helguvík. Beina samtökin því til Skipulagsstofnunar að fresta frekari málsmeðferð þar til frummatsskýrslur áformanna í heild sinni verða kynntar fyrir almenningi. Nánast ekkert sé fjallað um orkuflutninga og virkjanir þó svo að þessir hlutar áformanna séu líklegir til þess að valda mestu umhverfisáhrifunum. Bendir Landvernd á að samkvæmt skýrslunni eigi að virkja fjögur svæði, Seltún, Sandfell, Austurengjar og Trölladyngju, og þá verði um umtalsverðar framkvæmdir að ræða vegna raforkuflutninga um Strandaheiði, yfir Sveifluháls, Núpshlíðarháls og Móhálsadal. Þessar óhjákvæmilegu framkvæmdir hafi ekki farið í gegnum mat á umhverfisástæðum. Samtökin benda enn fremur á að með samanburði á losunartölum áformaðs álvers í Helguvík við nýjasta álverið á Íslandi, álver Alcoa í Reyðarfirði, komi í ljós að mengun á hvert framleitt tonn af áli yrði allt að 40 prósentum meiri í álveri Norðuráls í Helguvík en hjá álveri Alcoa á Reyðarfirði. Ekki sé útskýrt hvers vegna áformað sé að reisa álver sem mengar jafn mikið og raun ber vitni þegar ljóst megi vera að hægt væri að gera mun betur ef vilji stæði til þess. Þá segja samtökin að virkjunaráform á Krýsuvíkursvæðinu virðist ekki samræmast hugmyndafræði um sjálfbæra þróun. Fram hafi komið að svæðin geti gefið 15.100 megavött á ári en samkvæmt því myndi áformuð vinnsla á 400 megavöttum þurrmjólka svæðin á 35-40 árum.
Mest lesið Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Innlent Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Innlent „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Innlent Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Innlent Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Innlent Trump ósáttur við orð olíuforstjórans og vill útiloka hann Erlent „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Innlent Sturla Böðvarsson er látinn Innlent Mátti skjóta hund vegna viðbúins fjárhagslegs tjóns Innlent Reyna aftur að fá Helga Bjart á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Skammdegið víkur með hækkandi sól Rafmagnið í skemmunni þótti „slysagildra“ Hafnarfjarðarmálið: Spurning hvort ekki hafi verið litið til frásagnar foreldra Þetta skýrir mögnuðu norðurljósin „Það er bara ömurlegt að horfa upp á þetta“ Gengið ágætlega að slökkva og kalla fólk til baka Kvöldfréttir: Í beinni frá Gufunesi Náð tökum á stórbrunanum í Gufunesi Reyna aftur að fá Helga Bjart á bak við lás og slá Niðurstöður samræmdra prófa í vor verði opinberaðar Líkti Nönnu við skerpukjöt og uppskar gífurlega reiði Mátti skjóta hund vegna viðbúins fjárhagslegs tjóns Loka lauginni vegna veðurs Biðlar til ráðherra og segir upphrópanir ekki hjálpa Funda um Evrópumálin „fjarri kastljósi fjölmiðla“ Ásdís Halla og Erna Kristín skiptast á ráðuneytum Þóttist vera borgarstarfsmaður og sveik út síma og verkfæri Fyrsta skref Guðbjargar að taka sér frí Játar að hafa brotið á stúlku í Hafnarfirði Vonskuveður víða um land og óvissustig í gildi Íslenskum ríkisborgurum fjölgaði fimmtán sinnum meira en erlendum Enn til skoðunar hvort úrskurðurinn verði kærður Bálhvasst á Austfjörðum og óvissustig vegna snjóflóðahættu Maður ársins og slökkviliðið brugðust við vegna álftar sem fraus föst Þrjár vikur í fyrsta gjalddaga og 15% eiga eftir að skrá kílómetrastöðu Fengu ekki réttargæslumann þrátt fyrir grun um ofbeldi á leikskólanum „Martröð sem ég mun bera með mér alla ævi“ Draumur að skipuleggja kvennaverkfall í Þýskalandi Sturla Böðvarsson er látinn Forsjá varla ákveðin útfrá erfðafræðilegum tengslum Sjá meira