Geri mitt allra besta fyrir bresku þjóðina 27. júní 2007 14:08 Gordon Brown kom glaðbeittur af fundi drottningar í dag með umboð til myndunar ríkisstjórnar. MYND/AP
Gordon Brown, nýr forsætisráðherra Bretlands, sagðist myndu gera sitt allra besta í starfi fyrir bresku þjóðina og boðaði breytingar á tröppum Downing-strætis 10 þangað sem hann mun flytjast. Þangað kom hann skömmu eftir að Blair-fjölskyldan hafði kvatt þessi híbýli sín til síðustu tíu ára. Það gerði hún eftir að heimilisfaðirinn Tony Blair afhenti Elísabetu Bretlandsdrottningu afsagnarbréf sitt sem forsætisráðherra Bretlands. Fjölskyldan kom svo fram á tröppur húsins og kvaddi fjölmiðla en hennar bíður nú breytt líf eftir tíu ár í hringiðu stjórnmálanna í Bretlandi. Inn í Downingstræti 10 flytur Gordon Brown og fjölskylda hans, eiginkonan Sarah Macauley og synirnir John og James Fraser sem eru fjögurra ára og nærri eins árs. Tony og Cherie Blair kvöddu Downing-stræti 10 ásamt börnunum sínum fjórum eftir hádegi.MYND/AP Brown og Macauley komu að Downing-stræti fyrir stundu og þar sagðist Brown hafa fengið umboð frá Bretadrottningu til myndunar ríkisstjórnar. „Ég mun fylgja einkunnarorðum mínum frá því á skólaárum mínum og gera mitt allra besta fyrir bresku þjóðina," sagði Brown fyrir utan forsætisráðherrabústaðinn. Sagðist hann jafnframt myndu verða staðfastur og þrautseigur í baráttu sinni fyrir betra Bretlandi og að hann myndi hlusta og læra af samborgurum sínum. Brown hefur boðað breytingar með stjórn sinni og sagði að lokum:„Hefjum umbreytinguna." Búist er við því að Tony Blair fari síðar í dag til kjördæmis síns í Sedgefield þar sem hann tilkynnir um að hann hætti sem þingmaður eftir 24 ár á breska þinginu. Þá bendir allt til þess að hann verði sérstakur erindreki Fjórveldanna svokölluðu í málefnum Ísraels og Palestínu en tilkynnt verður um það síðar í dag.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Sjá meira