Erlent

Vara við hryðjuverkaárásum í Þýskalandi

Þýska lögreglan hefur meðal annars aukið viðbúnað við þýska þinghúsið.
Þýska lögreglan hefur meðal annars aukið viðbúnað við þýska þinghúsið. MYND/AP

Þýsk yfirvöld vöruðu í dag við hættu á sjálfsmorðsárásum í landinu og sögðu einnig hættu á sams konar árásum í Bandaríkjunum og 11. sepetember 2001.

Hvöttu þýsk stjórnvöld borgara til þess að vera á verði gagnvart hugsanlegum árásum en sögðu þó enga ástæðu til að fara á taugum. Stjórnvöld hafa aukið viðbúnað í landinu vegna tíðindanna og fjölgað lögreglumönnum á götum úti.

Þýska sjónvarpsstöðin ZDF greindi frá því í dag að stjórnvöld hefðu sannanir fyrir því að um tíu menn búsettir í Þýskalandi hefðu verið við þjálfun hjá uppreisnarmönnum í Pakistan og Afganistan. Þrír þeirra voru handteknir á leið sinni aftur til Þýskalands.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×