Erlent

Fingrafimur ræstitæknir í Glasgow

Píanóhæfileikar pólsks ræstitæknis við háskólann í Glasgow uppgötvuðust í gegnum vefmyndavél þegar yfirmenn hans sáu hann laumast í píanó skólans á vinnutíma.

Þegar fréttist af hæfileikum Alek Kudajcyk fóru fleiri og fleiri að fylgjast með spilamennsku hans á internetinu. Að lokum var hann beðinn um að halda tónleika í kirkju skólans. Það kom svo í ljós að áður en Alek flutti til Skotlands, var hann atvinnupíanóleikari í Póllandi.

Uppgötvunin í gegnum vefmyndavélina hefur orðið til þess a hinn 28 ára ræstitæknir spilar nú einnig á tónleikum og segist undrandi á því hversu vel honum hefur verið tekið.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×