Búist við erfiðum fundi í Brussel 21. júní 2007 12:45 Javier Solana, utanríkismálastjóri ESB, tekur á móti Angelu Merkel, kanslara Þýskalands, í Brussel í morgun. MYND/AP
Leiðtogar Evrópsambandsríkjanna koma saman til fundar í Brussel í dag til þess að reyna að ná samkomulagi um sáttmála um umbætur á samstarfinu. Þjóðverjar leggja til róttækar breytingar á samstarfinu en segja sáttmála sinn ekki nýja stjórnarskrá. Búist er við erfiðum fundi þegar leiðtogar ríkjanna 27 hittast í Brussel og reyna að ná sameiginlegri niðurstöðu um breytingar á Evrópusamstarfinu. Í tillögum Þjóðverja, sem fara með forystu í ESB um þessar mundir, er gert ráð fyrir viðamikilli endurskipurlagningu á starfi sambandsins sem miðar að því að einfalda stjórnsýslu. Þjóðverjar leggja mikla áherslu á að hinn nýi sáttmáli sé ekki ný stjórnarskrá fyrir sambandið sem kveði á um ofurríki í Evrópu. Þeir eru minnugir örlaga stjórnarskrár ESB fyrir tveimur árum, en þá höfnuðu bæði Frakkar og Hollendingar henni í þjóðaratkvæðagreiðslu. Talið er að helmingslíkur séu á að samkomulag náist um sáttmála á fundinum enda þarf að taka tillit til óska og krafna allra ríkjanna, en hagsmunir þeirra eru ólíkir. Þannig eru Bretar andvígir því að lögfesta sáttmála ESB um grundvallarréttindi. Það geti fært Evrópudómstólnum vald til að breyta vinnulöggjöf í Bretlandi. Þá vilja Pólverjar aukið atkvæðavægi innan sambandsins og hafa báðar þjóðir hótað því að hafna sáttmálanum fái þær ekki sínu framgengt. Búist er við að fundurinn standi jafnvel fram á laugardag vegna þess hve erfiðar viðræður eru í vændum.
Mest lesið Fær nýjar kröfur fimmtán mánuðum eftir andlát eiginkonunnar Innlent Fjölskyldur hafi þegar hætt við að flytja aftur til Grindavíkur Innlent Tryggvi Gíslason er látinn Innlent „Vona að Uber fái aldrei leyfi til að starfa á Íslandi“ Innlent Stefna á að opna kaffistofuna síðar í þessum mánuði Innlent Vegasjoppan sem byggði kamar fyrir Kristján tíunda Innlent Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Erlent Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Erlent „Þetta er hreinn uppspuni“ Innlent Sósíalisti fékk boðsferð til Kína Innlent Fleiri fréttir Ísland friðsælasta land heims nítjánda árið í röð Tólf látnir og níu særðir eftir skotárás í Jóhannesarborg Óeirðir í Belfast eftir hnífstungu Íranir gerðu hefndarárásir á herstöðvar í nágrannaríkjunum Gerir Repúblikönum á þingi enn lífið leitt Bandaríkjamenn ráðast á Íran Segir Írani hafa skotið niður þyrlu Bandaríkjanna Stríðið gegn holdétandi flugunni fær nýtt líf Kristersson í kröppum dansi á kosningaári Virðist bjartsýnn á að gæfan sé að snúast Úkraínumönnum í hag Armenar horfa áfram til vesturs eftir kosningar Ekkert lát á árásum Ísraelsmanna í suðurhluta Líbanon Fallið frá þróun nýrrar samevrópskrar herþotu Marius látinn laus Xi í heimsókn hjá Kim: Í keppni við Pútín um áhrif í Pyongyang Báðir segjast hættir, í bili Strunsaði úr viðtali: „Þú ert annaðhvort spillt eða heimsk“ Bretar setja ofan í við Vance vegna undirróðurs Skutu niður dróna yfir Lettlandi í fyrsta sinn Öflugur jarðskjálfti úti fyrir Filippseyjum í nótt Ísraelar og Íranir skiptast á skotum en Trump segist við stjórnvölinn Íranir skjóta á Ísrael Stór rafmagnsflugvél reynd fyrir fyrsta flug Bregðast við skammarbréfi Þorgerðar og félaga Fær fangelsisfrí til að heimsækja móður sína Lungnaígræðsla ekki lækning heldur sjúkdómaskipti Sátu að sumbli þegar eldur blossaði skyndilega upp í bifreið Fengu yfir sig holskeflu haturs eftir að þau ákváðu að binda enda á meðgönguna Pútín hafnar fundi með Selenskí og ítrekar kröfur Rússa Vill fá Ísland inn og tólf í viðbót Sjá meira