Erlent

Æstur múgur barði konu til dauða og kveikti í annarri

Lögreglumenn í Gvatemala.
Lögreglumenn í Gvatemala. MYND/AFP

Um tvö þúsund ævareiðir íbúar í bænum Camotan í Gvatemala börðu konu til dauða og kveiktu í annarri vegna gruns um að þær hefðu drepið stúlku í þeim tilgangi að stela líffærum hennar. Íbúarnir tóku konurnar af lífi á torgi í miðjum bænum en lögreglunni tókst að bjarga tveimur öðrum sem múgurinn ætlaði að ráðast á.

Hin níu ára Mishel Diaz hvarf frá heimili sínu í Camotan á þriðjudaginn í vikunni sem leið og fannst illa misþyrmt lík hennar daginn eftir. Töldu lögregluyfirvöld að ræningjarnir hefðu reynt að fjarlæg mikilvæg líffæri úr líkama stúlkunnar til að selja.

Grunur íbúa í bænum beindist fljótlega að konunum fjórum en vitni sagðist hafa séð eina þeirra ræna stúlkunni. Þetta var nóg fyrir íbúana sem réðust á konurnar með kylfum og steinum.

Djúpstæður ótti ríkir meðal fátækra íbúa í Gvatemala um að börnum þeirra verði rænt í þeim tilgangi að selja úr þeim líffæri. Í flestum tilvikum er hræðslan byggð á kjaftasögum og óstaðfestum fregnum.

Aftökur án dóms og laga er ekki óþekkt fyrirbæri í Gvatemala en frá árinu 1996 hafa hundruðir manna látið lífið á þann hátt.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×