Lífið

Simon Cowell: Ég sel fleiri plötur en Springsteen

Simon Cowell er ánægður með velgengni Idolsins
Simon Cowell er ánægður með velgengni Idolsins MYND/Getty Images

Frábært gengi raunveruleikaþáttarins American Idol hefur svo sannarlega komið fram á bankareikningnum hans Simon Cowell. Í viðtali fréttaskýringarþáttarins 60 Minutes við Simon, sem verður sýnt Vestanhafs næsta sunnudagskvöld, segir Simon að hann selji fleiri plötur en Bruce Springsteen. Hann hafi selt meira en hundrað milljónir platna. Hann hafi á snærum sínum stærstu listamenn í heimi og sigurvegarar í Idolinu skrifi undir samning við Sony BMG. Simon Cowell gengur því allt í haginn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.