Gambari hitti Suu Kyi í morgun 30. september 2007 09:30 Ibrahim Gambari sendifulltrúi SÞ. MYND/AFP
Sendifulltrúi Sameinuðu þjóðanna í Mjanmar, Ibrahim Gambari, hitti í morgun leiðtoga stjórnarandstöðunnar, sem er í stofufangelsi. Gambari kom til Yangon stærstu borgar Mjanmar í morgun. Diplómatar í Yangon segja að hann hafi þegar hitt Aung San Suu Kyi leiðtoga stjórnarandstöðunnar. Nánari fréttir hafa ekki fengist af þeim fundi. Gambari ræddi við herforingjana sem stjórna Mjanmar í gær í höfuðborginni Næpídav. Ekkert hefur spurst út um viðræður Gambaris við herforingjana, en líklegt er að hann hafi rætt við Tan Shwe, hershöfðingjann sem talinn er valdamestur í stjórn landsins. Stjórnvöld í Japan sendu í dag sendifulltrúa til Mjanmar til að þrýsta á að dauði japansks myndatökumanns á miðvikudag verði rannsakaður. Á myndum af atvikinu má sjá að hermaður skaut hann af stuttu færi. Engar áreiðanlegar tölur hafa borist af heildarfjölda látinna. Stjórnvöld segja að tíu manns hafi látið lífið í átökum undanfarinna daga en stjórnarandstæðingar segja að þeir séu miklu fleiri. Fáir eru nú á götum Yangon og hvergi sjást munkar, sem leiddu mótmælaaðgerðirnar, enda hafa margir þeirra verið handteknir og aðrir lokaðir inni í klaustrum sínum sem eru umkringd gaddavír.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Þúsundir manna mótmæla í 50 borgum Sjá meira