Erlent

Mótmæla afnámi verkfallsrétts

Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar

Hundruð verkalýðssinna mótmæltu á götum Brussel í Belgíu í dag vegna þess að ekki er gert ráð fyrir verkfalls- og mótmælarétti í nýjum drögum að stjórnarskrá Evrópusambandsins. Fólkið kom frá fjölda Evrópulanda og mótmælti skammt frá byggingu Leiðtogaráðs sambandsins.

Í þessari viku funda fulltrúar aðildarlandanna um nýjan stjórnarskrársáttmála. Verkalýðssinnarnir segja vísbendingar um að litið verið framhjá sáttmála um grundvallarréttindi. Hann kveður meðal annars á um verkfallsrétt. Bandalag verkalýðsfélaga í Evrópu hefur um árabil krafist innleiðingar sáttmálans um grundvallarréttindi í aðra sáttmála sambandsins.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×