Segjast hafa sannanir fyrir því að Íranir útvegi Talibönum vopn 16. júní 2007 20:05
Bandaríkjamenn segjast hafa óyggjandi sannanir fyrir því að Íranar útvegi Talíbönum í Afganistan vopn í baráttunni við herlið Afgana og Atlantshafsbandalagsins. Viðbrögð annarra þjóða eru varfærin við þeim fréttum en Bandaríkjamenn hafa áður lagt fram óyggjandi sannanir á alþjóða vettvangi. Það var í febrúar 2003 sem Colin Powell, þáverandi utanríkisráðherra Bandaríkjanna, kom fyrir Öryggisráð Sameinuðu þjóðanna til að færa rök fyrir innrás í Írak. Hann sagði engan vafa á því að Saddam Hússein, þáverandi Íraksforseti, hefði yfir efnavopnum að ráða og gæti framleitt fleiri. Hann sagði einnig engan vafa á því í sínum huga að Saddam reyndi hvað sem hann gæti til að verða sér úti um efni til að framleiða kjarnorkuvopn. Ráðist var inn í Írak rúmum mánuði síðar. Eftir fall Saddams fundust engin efnavopn í Írak og ekkert sem benti til kjarnorkuvopnasmíði. Powell sagði 2005 að ræðan væri svartur blettur á ferli sínum. Nú segja bandarísk stjórnvöld óyggjandi sannanir fyrir því að vopn frá Íran hafi ratað í hendur Talíbana í Afganistan. Þetta endurtók Nicholas Burns, aðstoðar utanríkisráðherra Bandaríkjanna, á blaðamannfundi í Reykjavík í gær.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Skora á borgina að bæta ekki við beygjuvasa Innlent Ólíklegt að pestin berist til Íslands Innlent Rubio: Ísland í miðjunni Innlent Verði að gera fyrirvara við rannsókn um karlmennsku Innlent Bjarni segir ekkert hæft í að verið sé að úthýsa Aþenu Innlent Greinir skýran vilja til meira samstarfs Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Þurfa að hætta við mótorakaup fáist ekki fé frá ríkinu Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Fleiri fréttir Komin til meðvitundar eftir misheppnaða aftöku Stýrði leyniþjónustu en nú sakaður um njósnir Til í að fórna borgum þar sem demókratar eru við völd Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Sjá meira