Fjölþjóðalið berst við skógarelda í Grikklandi Þórir Guðmundsson skrifar 28. ágúst 2007 11:44
Slökkviliðsmenn frá sautján löndum berjast nú við skógareldana í Grikklandi við hlið grískra starfsbræðra sinna. Eldar kvikna hraðar en slökkviliðsmönnum tekst að kveða þá niður. Slökkviliðsmenn á átján flugvélum og jafn mörgum þyrlum reyna án afláts að slökkva eldana úr lofti. Fjórar þyrlur frá Sviss og 55 slökkviliðsmenn frá Ísrael eru í fjölþjóðaliðinu sem nú hefur hafið störf í Grikklandi. Vitað er um 64 menn sem hafa látið lífið í þessum mestu skógareldum sem sögur fara af í landinu. Á síðasta sólarhring kviknuðu 56 eldar á ýmsum stöðum. Hlutfallið milli elda sem kvikna og elda sem slökktir eru er ekki slökkviliðsmönnum í hag. Stjórnvöld hafa fyrirskipað rýmingu margra þorpa á hættusvæðum en fjöldi þorpsbúa neitar að yfirgefa heimili sín. Í ófáum tilfellum koma björgunarmenn að mönnum sem berjast við eldana við heimili sín, þó að þeir eigi að vera löngu farnir burt. Mikil reiði ríkir í garð stjórnvalda, sem þykja hafa brugðist seint við. Almennar kosningar eru sextánda september og gert er ráð fyrir að eldarnir - og viðbrögðin við þeim - verði hitamálið fyrir þessar kosningar.
Mest lesið Öll spjót beinast að ÍBR vegna skipulagsleysis og „rugls í ræsingu“ Innlent Brotið á barni með því að loka það inni í einveruherbergi Innlent Kraftaverk að ekki fór verr þegar bíll hafnaði ofan á tveimur Innlent Stórhættulegur framúrakstur við Ingólfsfjall Innlent Leitar kofans sem hvarf í heilu lagi Innlent Von á leifum fellibylsins Erin til landsins Veður „Heilt yfir“ friðsamleg Menningarnótt en nokkrir ofbeldisfullir Innlent Mölbraut rúðu í Þjóðleikhúsinu Innlent Skutu upp flugeldum í minningu Bryndísar Klöru Innlent Þrjár líkamsárásir og yfir tuttugu ungmenni í athvarf Innlent Fleiri fréttir Á sjöunda tug drepin í stórtækum árásum Ríkisstjóri Illinois sakar Trump um valdníðslu Lést við tökur á Emily in Paris „Forsetinn var aldrei óviðeigandi við neinn“ Fjöldi látinn eftir rútuslys í New York Gerðu húsleit á heimili fyrrverandi þjóðaröryggisráðgjafa Trump Staðfesta hungursneyð á Gasa Thunberg og félagar borin út úr norska seðlabankanum Hótar Hamas með helvíti og gjöreyðingu Gasa-borgar Rússar vilja koma að því að tryggja öryggi Úkraínu Erik Menendez fær ekki reynslulausn Fella niður 64 milljarða sekt Trump Samþykktu ný hagstæðari kjördæmi í Texas Vara við hörmungum verði gert áhlaup á Gasaborg Stefna á fjöldaframleiðslu á eigin stýriflaugum Losun Kína dregst saman vegna uppgangs í sólarorku Líkamlegar refsingar hamla þroska og hafa áhættu í för með sér Handtekinn á Ítalíu vegna Nord Stream sprenginganna Rússar halda árásum áfram Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Mega neita þeim aðgengi sem bera keffiyeh Hefur áhyggjur af gervigreind sem virðist sjálfsmeðvituð Engir hermenn í Úkraínu og enginn fundur með Pútín Kalla tugi þúsunda til herþjónustu Öflugasti sjónaukinn fann áður óþekkt tungl í sólkerfinu „Stríðin“ sex, stundum sjö, sem Trump segist hafa stöðvað Kirkjan í Kiruna komin á áfangastað Frambjóðandi sem ræddi um morð á hundi farinn í hundana Nýtt flaggskip Rússa á sjó eftir tuttugu og fimm ár í slipp Hondúras og Úganda samþykkja að taka við hælisleitendum Sjá meira