Erlent

Ahmadinejad vill aðstoða í Írak

Mahmoud Ahmadinejad
Mahmoud Ahmadinejad
Mahmoud Ahmadinejad forseti Írans sagði í dag að áhrif Bandaríkjanna í Írak færu þverrandi og að Íran væri tilbúið að leggja sitt lóð á vogarskálarnar.

,,Það kvarnast óðfluga úr pólitískum mætti hersetumannanna, og innan skamms verður risastórt tómarúm í valdakerfi landsins" sagði Ahmedinejad á blaðamannafundi í Teheran í dag. Þá sagði hann að Íran, með aðstoð Íröksku þjóðarinnar og nágranna þeirra væri reiðubúið að fylla þetta tómarúm.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×