Erlent

Mikið mannfall í Afganistan

Jón Hákon Halldórsson skrifar
Fjölmargir hafa látist í Afganistan síðustu þrjá daga.
Fjölmargir hafa látist í Afganistan síðustu þrjá daga. Mynd/ AFP
Talið er að yfir 100 manns, bæði óbreyttir borgarar og hermenn hafi látist, og nokkrir særst í sprengjuátökum milli afganskra NATO hersveita og Talíbana í Suður - Afganistan á síðustu þremur dögum.

Átökin hófust á sunnudag á Urozgan svæðinu á sunnudag. Sextíu óbreyttir borgarar, 70 talíbanskir hermenn og 16 afganskir lögreglumenn eru þegar látnir. Að minnsta kosti 100 manns hafa særst í átökunum.

Talsmaður innanríkisráðherra Afganista, Zamarai Bashari, vill ekki viðurkenna þetta mannfall, segir að 10 óbreyttir borgarar hafi látist og 18 særst, en 60 hermenn Talíbana og fjórir afganskir lögreglumenn hafi látist.

Átökin standa enn yfir og ekki sér fyrir endan á þeim.



Fleiri fréttir

Sjá meira


×