Spiluðu golf á toppi Eyrarfjalls 19. júní 2007 09:15 Slegið í 714 metra hæð. Gunnlaugur Jónasson sést hér slá yfir Bakkaskemmu. MYND/BB „
Þetta voru klárlega þær öfgafyllstu og dramatískustu aðstæður sem ég hef spilað við,“ segir kylfingurinn Gunnlaugur Jónasson sem tók þátt í skemmtilegri tilraun sem nokkrir golfáhugamenn gerðu á toppi Eyrarfjalls á Vestfjörðum í vikunni. Þá slógu þeir golfkúlu yfir gilið Bakkaskemmu sem samkvæmt óformlegum mælingum er rétt um 200 metrar á lengd. Höggið var slegið á toppi Eyrarfjalls, sem er 714 metrar á hæð. Eftir því sem fram kemur á vef Bæjarins bestu á Ísafirði er ekki vitað til þess að golf hafi verið leikið í jafn mikilli hæð á Íslandi. „Þetta var alveg magnað,“ sagði Gunnlaugur þegar hann lýsti upplifuninni. „Veðrið var stillt og ekki mikill vindur. Aðstæður voru eins og best verður á kosið.“ Gunnlaugur segir öruggt að hann muni spreyta sig aftur í viðlíka víðáttu. „Það er æðislegt að spreyta sig í svona náttúru. Það er aldrei að vita nema að þetta verði upphafið á einhverju trendi,” sagði Gunnlaugur og glotti við tönn. Uppákoman á Eyrarfjalli var liður í kynningarfundi um kláf sem brátt verður reistur á fjallinu. Þess ber að geta að þrátt fyrir mikinn þrýsting kylfinganna stendur ekki til að reisa golfvöll uppi á fjallinu.
Mest lesið Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni Lífið Alræmt hús á Túngötu til sölu Lífið „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Lífið Kjánalegustu augnablikin í umræðunni um aðildarviðræður Menning Svandís í ritstjórastól Menning Tim Curry er látinn Bíó og sjónvarp Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lífið Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Lífið Sísí Ey snýr aftur eftir tíu ára fjarveru Tónlist Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Lífið Fleiri fréttir Neðanjarðarlestin endalaus uppspretta skrítinna atvika Camilla Rut og Valgeir hafa slitið trúlofuninni „Það færist skuggi yfir manneskju sem endar með því að hann rænir hana lífinu“ Alræmt hús á Túngötu til sölu Leitaði á náðir Dolly Parton á erfiðum tímum Lést í kjölfar krabbameinsgreiningar Sigraði hundahlaupið með hundinn í pössun Flaggar í hálfa stöng í viku til heiðurs Dolly Dolly Parton látin Klökknaði við upprifjunina: „Á geðveikt erfiðum tíma í lífinu mínu“ Laufey fagnaði Laufeyjardeginum á Íslandi „Brúðkaup var ekki á bingóspjaldinu fyrir sumarfríið“ Stjörnum prýtt svitapartý Hvað veistu um… bæjarhátíðir? Fullt út úr dyrum í prjónapartýi ársins Siggi Gunnars hættur sem tónlistarstjóri Rásar 2 Léttist við stöðugt pizzuát „Hún sagði já“ Orðin háð því að vera „enginn“ Stjörnulífið: Afmælið endaði með ælu Myndaveisla: Litagleði og lögregla á Tónaflóði á Arnarhóli Margir minnast Steins Ármanns: „Gaf okkur stærstu gjöf sem hægt er að gefa“ „Ég er bara einhver skel af sjálfri mér núna“ Leikkonan Bunny Levine er látin Davíð Þór um fráfall Steins Ármanns: „Engin orð. Bara sorg“ Steinn Ármann er látinn Kjóllinn brann korter í brúðkaup Krakkatía vikunnar: Svampur Sveinsson og Sesarsalatið Fór létt með tíu kílómetra: „Við sjáumst bara í markinu gamla mín“ Úlfadrengurinn í Sierra Morena allur Sjá meira