Luku leik með sjö leikmönnum 21. janúar 2007 14:13 Getty Images
Fjórir leikmenn Osasuna fengu að líta rauða spjaldið þegar liðið heimsótti Atletico Madrid í spænsku úrvalsdeildinni í knattspyrnu í gærkvöldi. Osasuna er eina liðið í spænsku efstu deildinni sem lýkur leik með 7 leikmenn inni á vellinum á síðustu 10 keppnistímabilum. Andrúmsloftið var slæmt á Vicente Calderon vellinum í Madrid í gærkvöldi en snemma leiks varð Kamerúnski sóknarmaðurinn hjá Osasuna, Pierre Webo fyrir barðinu á kynþáttaníði stuðningsmanna Atletico. Lítið var um knattspyrnu í fyrri hálfleik og það var 12 mínútum fyrir leikslok að fyrsta rauða spjaldið fór á loft. Carlos Cuellar varnarmanni Osasuna var vikið af velli fyrir að brjóta á Fernando Torres inni í vítateig. Torres tók vítaspyrnuna sjálfur en skaut í stöngina. En á 84. mínútu skoraði Ze Castro eina mark leiksins og sigurmark Atletico. Eftir það leystist leikurinn upp í farsa. Roberto Soldado hjá Osasuna fékk að líta rauða spjaldið fyrir að reka olnbogann í andlit Ze Castro og markvörðurinn Ricardo fékk að líta sitt annað gula spjald í viðtbótartíma og leikmenn Osasuna orðnir átta talsins. Það var svo nokkrum sekúndum fyrir lokaflautið að Raúl García varð fjórði leikmaður Osasuna til að fá rauða spjaldið þegar hann veitti Grikkjanum Giourkas Seitaridis olnbogaskot. Atletico tyllti sér í þriðja sæti deildarinnar með sigrinum þar sem liðið er með 35 stig, jafnmörg og Barcelona og Real Madrid sem eiga leiki til góða í dag.
Spænski boltinn Mest lesið Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Fótbolti Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Enski boltinn Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Enski boltinn Almar og Friðrik Leó með í Marsfárinu Körfubolti Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Enski boltinn VIP-miðar í boði til að komast nær strákunum okkar Handbolti Sló í fugl en það dugði ekki til Golf Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Fótbolti Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Fótbolti Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Fótbolti Fleiri fréttir Guardiola aflýsti æfingu liðsins Dómarinn festist á leikmannafundi Chelsea „Þeir eru líka að skíta á sig“ Bayern þarf að sækja um útivistarleyfi fyrir markmanninn Stjörnurnar með Madrídingum til Manchester Chelsea hlaut bann og þunga sekt eftir ólöglegar leynigreiðslur Fyrsta þjálfarastarfið á Ítalíu Cecilía hélt hreinu í fjarveru Karólínu Fernandes einn af örfáum sem kæmist í gullaldarlið United Sjáðu Sveindísi stinga af og leggja upp Ter Stegen fékk ekki að kjósa Sjáðu Richarlison refsa Liverpool og Bruno nálgast metið Fékk rautt fyrir að klípa í klofið Afar vandræðalegt viðtal við Tudor: „Erum við búnir eða ekki?“ Carragher brjálaður: „Létu Tottenham líta út fyrir að vera fínt lið“ Ótrúleg staða hjá Bayern: Allir markverðirnir meiddir Hákon markahæstur hjá Lille í deildinni Rooney vill að Carrick fái starfið: „Vissi að þetta myndi gerast“ Logi skoraði sigurmark í uppbótartíma „Ef við höldum svona áfram verðum við sáttir með að komast í Sambandsdeildina“ Stefán Ingi skoraði í stórsigri Glódís hafði betur gegn Söndru Raphinha með þrennu í öruggum sigri Barcelona Richarlison tryggði Tottenham fyrsta stigið undir stjórn Tudors Sesko innsiglaði þýðingarmikinn sigur Manchester United Martraðarbyrjun fyrir Frey en Júlíus Mar í draumalandi Daníel Ingi með stoðsendinguna að dramatísku sigurmarki Fanney og Thelma áfram í sænska bikarnum Genoa tengdi saman sigra Erfitt hjá Kristian og Twente í dag Sjá meira