Þægilegt skal það vera 26. maí 2007 14:00 Anna Margrét Björnsson
Það er ýmislegt í tísku núna sem hentar ekki beinlínis í vinnunna. Mínístuttbuxur, korselett og gallabuxur með háu mitti eru smart í kokteilboðin eða út á lífið en eru ekki praktískur kostur á skrifstofunni. Það sem er búið að heilla mig sérstaklega í vor eru þessar skemmtilegu útgáfur af stuttum skokkum sem eru frekar lausir í sniðinu og virka bæði einir og sér eða yfir gallabuxur eða leggings. Víður kjóll er reyndar fullkomið vinnudress þar sem hann getur verið þægilegur, stelpulegur og smart og svo er lítið mál að dressa hann upp með háum hælum eða fallegum skartgripum. Í raun snýst allt um fullkomin hlutföll í sumar, að minnsta kosti þegar það kemur að hversdagslegum klæðaburði. Stuttir kjólar mega ekki líka vera níðþröngir, og eins ef þú ert í níðþröngum „skinny“ gallabuxum er svalt að vera í lausri blússu við. Þröngt, þröngt alla leið gefur frekar til kynna að þú sért að mæta á næturklúbb (eða strippklúbb!) heldur en á skrifstofuna. Fullkominn kjóll frá French Connection Skemmtilegur kostur í sumar er svo kjóllinn sem gengur við bókstaflega allt og er lítið annað en síður stuttermabolur. Hvað gæti verið einfaldara en að smeygja þægilegum bol yfir hausinn, með engum smellum, hnöppum, tölum og rennilásum og skella svo sokkabuxum, skóm og fallegri tösku við. Ég á einn svartan sem gegnir öllum hlutverkum: í vinnunni við stígvél, að kvöldlagi við háhælaða skó og breitt belti og ég sé hann líka í anda í sumarfríinu við sandala eða ballerínuskó. Það væri margt vitlausara en að kaupa nokkra einfalda stuttermakjóla eða boli í yfirstærð í sumar og leika sér að því að poppa þá upp með fylgihlutum. En munum, eins og Carine Roitfeld, ritstýra franska Vogue segir í sífellu: því einfaldara, því betra! PS. Ef síður tískublaða eru skoðaðar er augljóst að augabrúnir kvenna eiga að vera náttúrulegar í sumar, reyndar eins og undanfarin ár. Það er mér algjör ráðgáta hvers vegna aumingja stúlkurnar í Ungfrú Ísland eru plokkaðar svona mikið til og þurfa að bera einhvers konar risa gervileg fyrirbrigði í sáðfrumulíki á annars sætum ofurappelsínugulum andlitunum...
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Lífið Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira