Sá Síðasta konung Skotlands í Úganda 5. mars 2007 07:30 Fylgdi Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra eftir á ferð hennar um Afríku. „
Það höfðu allir miklar skoðanir á myndinni enda er stjórnartíð Idi Amins mörgum enn í fersku minni,“ segir Sveinn H. Guðmarsson, fréttamaður á Stöð tvö, um viðbrögð Úgandabúa við kvikmyndinni The Last King of Scotland. Sveinn er nýkominn heim eftir að hafa fylgt Valgerði Sverrisdóttur utanríkisráðherra eftir á ferðalagi hennar um Afríku undanfarna viku. Þegar hópurinn var í Kampala, höfuðborg Úganda, notaði Sveinn tækifærið og brá sér í kvikmyndahús og sá myndina The Last King of Scotland sem fjallar um Idi Amin, einræðisherrann sem stjórnaði landinu með harðri hendi á árunum 1971-1979. „Idi Amin er langt því frá þjóðhetja í Úganda, þvert á móti. Í myndinni er honum lýst sem vænisjúkum og dyntóttum harðstjóra og það virtist koma heim og saman við þá ímynd sem Úgandabúar hafa af honum. Við fórum með myndavél með okkur og ræddum við nokkra sýningargesti, þar á meðal mann sem mundi vel eftir stjórnartíð Amins og hafði reynt hana á eigin skinni. Við sýnum þessi viðtöl á Stöð tvö væntanlega innan fárra daga.“ Eins og kunnugt er fékk Forest Whitaker Óskarsverðlaunin á dögunum fyrir túlkun sína á harðstjóranum í myndinni, sem er að mestu leyti tekin í Úganda. Sveinn segir að bíógestir hafi verið upprifnir þegar þeir báru kennsl á þekkt kennileiti frá heimalandi sínu. „Það fór til dæmis iðulega kliður um salinn þegar myndir komu af forsetahöllinni eða flugvellinum í Kampala, enda ekki á hverjum degi sem Úganda er sögusvið mynda sem njóta alþjóðlegrar velgengni.“
Mest lesið Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ Lífið Douglas gengst við enn einu framhjáhaldinu Bíó og sjónvarp Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Lífið Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Lífið Lækna-Tómas og Ármann skemmtu sér á safninu Menning Barnaspítalabindi Billy stal senunni Tíska og hönnun Eva Marie Saint er látin Lífið „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Lífið Kristrún valdi Victoriu Beckham Tíska og hönnun „Ég geri bara ráð fyrir því að fólk sé búið að gleyma mér“ Tónlist Fleiri fréttir Vinsældirnar skipti miklu máli fyrir arfleifð Johns Snorra Simmi og Auddi mættust aftur á skjánum Eva Marie Saint er látin Ung og upprennandi: „Pabbi segir mér alveg að hætta þessu“ „Það væri ekki hægt að skrifa þetta handrit“ Minntist pabba síns Johns Snorra: „Að sjálfsögðu hringdi ég í pabba!“ Dagbók lögreglu: Próflaus eineygður ökumaður flúði af vettvangi Grétu af gleði þegar þær hittust loksins Stjörnurnar þefuðu á Kjarval Ice Spice og Millie skelltu sér í pottinn Hvað veistu um... íslenska hönnun? Funheit í fimm ára afmæli Engum brögðum beitt í útgáfuhófi Bragðs Tendra friðarsúluna í tuttugasta sinn Elegant herrar selja perlu í 101 Tískudrottningar fögnuðu kærkominni opnun Dorrit um skilnaðinn: „Líf mitt er algjörlega á hvolfi“ Barnsfaðir Gypsy Rose fannst látinn Stjörnulífið: „Lukka lífs míns að vera gift þessum“ Fæddist á Íslandi en þurfti áratugi til að fá það staðfest Fyndnustu dýralífsmyndir ársins Ekki átakalaust að breyta rótgrónu félagi Ástæða fyrir því að þau fóru ekki hátt með sambandið Hágrét í rúminu þegar allur peningurinn var búinn Krakkatía vikunnar: Eurovision, Harry Potter og Mr. Beast Líður betur eftir að hún þurfti að þjóta upp á spítala í miðri útsendingu Haustbingó Blökastsins í beinni Hemmi Gunn hjálpaði Hilmari og Birni Braga að svindla Segir Ríkissjónvarpið bregða fyrir sig fæti Unglingavinnan var tískupallurinn í París Sjá meira