Lífið

Robbie Williams kominn úr meðferð

Íslandsvinurinn Robbie Williams
Íslandsvinurinn Robbie Williams MYND/Getty Images

Söngvarinn Robbie Williams hefur dvalið í meðferð í Arizona síðustu þrjár vikur en er nú útskrifaður. Var hann í meðferð vegna fíknar sinnar í lyfseðilskyld lyf. Talsmaður söngvarans hefur staðfest þetta og segir hann nú gangast undir eftirmeðferð í Los Angeles.

Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Robbie leitar sér hjálpar vegna vímuefnanotkunar. Þegar hann yfirgaf strákahljómsveitina Take That árið 1995 fór hann í meðferð vegna áfengis- og vímuefnanotkunar. Í þetta sinnið skráði hann sig sjálfviljugur inn á meðferðarheimilið í Arizona á 33 ára afmælisdaginn sinn.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.