Bæjarráð Bolungarvíkur vonsvikið með skýrslu Hafró Gunnar Valþórsson skrifar 5. júní 2007 10:09 MYND/Vilmundur
Í ályktun Bæjarráðs Bolungarvíkur sem samþykkt var nú í morgun er lýst miklum vonbrigðum með nýúkomna skýrslu Hafrannsóknarstofnunar. Bæjarráðið segir að verði farið að ráðum stofnunarinnar muni það þýða 1200 tonna skerðingu í aflaheimildum á slægðum þorski í Bolungarvík og að útflutningsverðmæti frá bænum dragist saman um 300 milljónir króna á ársgrundvelli. Bæjarráðið segir einnig að tillögur Hafró séu til þess fallnar að auka samþjöppun í sjávarútvegi. Þá er bent á að í upphafi hafi aflamarkskerfið verið búið til með það að markmiði að stækka þorskstofninn og styrkja byggðir í landinu. „Það hefur algjörlega brugðist," segir að lokum í ályktuninni. Ályktunin fer hér á eftir í heild sinni: „Bæjarráð Bolungarvíkur lýsir yfir miklum vonbrigðum með nýútkomna skýrslu Hafrannsóknarstofnunar um ástand nytjastofna á Íslandsmiðum. Þar koma m.a. fram tillögur um stófelldan niðurskurð á leyfilegum hámarksafla í þorski á næsta fiskveiðiári. Nái tillögur stofnunarinnar fram að ganga þýðir það að aflaheimildir Vestfirðinga af slægðum þorski skerðast um 6.000 tonn og um 1.200 tonn sé aðeins horft til Bolungarvíkur. Á ársgrundvelli má ætla að útflutningsverðmæti frá Bolungarvík dragist af þessum völdum saman um 300 milljónir króna. Ljóst er að þessar tillögur Hafrannsóknarstofnunar munu hafa gríðarleg áhrif nái þær fram að ganga að hluta til eða öllu leyti. Tillögurnar eru til þess fallnar að auka enn á samþjöppun sjávarútvegi þar sem stærri fyrirtæki kaupa upp þau minni. Atburðir síðustu vikna sýna að slík viðskipti geta auðveldlega kippt stoðunum undan tilvist sjávarþorpa á landsbyggðinni. Þegar lagt var upp með aflamarkskerfið árið 1983 var markmiðið að stækka þorskstofninn og styrkja byggðir í landinu. Það hefur algjörlega brugðist."
Mest lesið Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Innlent Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Innlent Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Innlent Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Innlent Fannst heill á húfi Innlent Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Innlent „Dýrlingurinn“ tekinn úr umferð en keyrir enn Innlent Ætla að stoppa farandfólk með svartri málningu Erlent „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Innlent Telur handtökuna byggja á slúðri Innlent Fleiri fréttir Fundu ríflega tuttugu lítra af brennisteinssýru í Gnoðarvogi Mikilvægt að nota réttu orðin sem séu píka og typpi Biðla til bílstjóra sem leggja á bílastæði kirkjunnar Gjörólíkt gengi frá kosningum Helmingur landsmanna ánægður með störf Höllu Rafmagnslaust í öllum Skagafirði Gerður ráðin skólastjóri Barnaskóla Kársness Menntamálaráðherra greindur með þágufallssýki Fjórir greinast að meðaltali á ári með malaríu Markar lok vegferðar sem hófst vegna Kristnihátíðarinnar 2000 Óska eftir myndefni af gröfunni Vendingar í hraðbankamálinu og húsnæði sem fólk vill ekki Fórnarlamb stórhættulegs hrekks sem betur fer með hjálm Fannst heill á húfi Síðustu aspirnar á Austurvegi felldar Björguðu ferðamanni sem hafði fest bílinn í aurbleytu við Hagavatn Gæsluvarðhaldskröfu hafnað í hraðbankamálinu „Þessi sleggja, sem var sveiflað, var gúmmísleggja“ Verkefni stjórnvalda að takast á við undantekningar í skólakerfinu Leiguverðshækkanir hafa étið upp hækkun húsnæðisbóta Stór hluti felldur niður og Shamsudin-bræður játa Meðalvelta á kaupsamning 75,6 milljónir króna Leysigeisla beint að tveimur flugvélum í aðflugi Nýr tvöfaldur vegarkafli að bætast við Suðurlandsveg Telur handtökuna byggja á slúðri Magnað sjónarspil: Einmana hrefna komst í gott „Lögreglan mun grípa fyrr inn í núna“ Barn lést úr malaríu á Landspítalanum Gaf sig fram vegna hraðbankastuldar Aukið aðhald í ríkisfjármálum og lífsbarátta hvals Sjá meira