Þrír látnir í flóðunum í Bretlandi Sigríður Guðlaugsdóttir skrifar 26. júlí 2007 18:27
Hitarnir í Suðaustur Evrópu og flóðin í Bretlandi eru talin afleiðing þess að loftstraumar og lægðir ganga nú sunnar en verið hefur. Þetta hefur orsakað einmuna veðurblíðu hér á landi í sumar. Þrír eru látnir í flóðunum í Bretlandi í dag. Hundruð íbúa flóðasvæðanna í Bretlandi snúa nú til síns heima, en flóðin eru í rénun. Eignatjón er gífurlegt, auk þess sem rafmagnsleysi og vatnsskortur hrjá enn sum flóðasvæðin. Íbúar hafa verið varaðir við vatnspumpum sem ganga fyrir eldsneyti, en tveir menn létust úr eitrun þegar þeir reyndu að dæla vatni úr íþróttahúsi með eldsneytisdælu sem spúði eiturgufum. Lík þriðja fórnarlambs flóðanna fannst í ánni Great Ouse á þriðjudag, en það var karlmaður á fimmtugsaldri. Yfirvöld vara fólk við að komast í beina snertingu við flóðvatnið sem er blandað skólpi og eiturefnum, en segja þó ekki bráða hættu á sjúkdómum. Vatnsfyrirtækið Severn Trent áætlaði að koma vatni á til um 10 þúsund heimila í Tewkesbury í dag. íbúar eru þó varaðir við að drekka kranavatnið enn sem komið er. Enn eru rúmlega 300 þúsund manns án neysluvatns á flóðasvæðunum. Úrkoma í júní og júlí hefur ekki verið meiri frá upphafi mælinga í Bretlandi.Orsakir hennar liggja í því að lægðir sem vanalega ganga yfir Ísland, hafa í sumar gengið suður fyrir landið. Elín Björk Jónasdóttir veðurfræðingur segir ekki vitað um orsakir þess að loftstrengurinn liggur svona sunnarlega í ár, en hann hafi orsakað einmuna blíðu hér í sumar.
Mest lesið Hola í vegi tók fjóra bíla úr umferð á vanræktum vegkafla Innlent Mikill meirihluti féll fyrir íslenskri gervigreindarmynd Innlent Sjá sér með engu móti fært að ná björgunarflugi Innlent Jón Baldvin segir söguskýringu Dags af og frá: Samdi við Davíð um EES Innlent Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Erlent Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Erlent Tólf prósent Íslendinga á bótum Innlent Þór styrkti Kvennaathvarfið og fær að halda pútternum Innlent Ekki í fyrsta skipti sem oddvitarnir kljást um bílastæðamál Innlent Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Erlent Fleiri fréttir Reyna að varðveita líf áhafnar annars íransks skips Ráðast á bandarískt olíuflutningaskip en sverja af sér árás á Tyrkland Bondi neydd til að svara spurningum um Epstein-málið Skæðadrífa frá Íran og Ísraelar héldu árásum á Líbanon áfram Taka beri orðum bandarískra stjórnvalda um stöðuna í Íran með fyrirvara Sökktu skipi með tundurskeyti í fyrsta sinn frá seinna stríði Gæti Ísland dregist inn í átökin?: Eldflaug frá Íran skotin niður í lofthelgi Tyrklands Gefur lítið fyrir hótanir Trumps Írönum og Bandaríkjamönnum ber ekki saman um stöðuna á Hormuz-sundi Danskur öfgamaður ákærður fyrir nauðgunarlýsingar Clinton stöðvaði yfirheyrsluna og gekk út Græningjar teknir fram úr Verkamanna- og Íhaldsflokki Vaktin: Átökin breiðast enn út Frakkar fjölga kjarnavopnum Ísrael gerir árásir á Tehran og Beirút og Íranir svara fyrir sig Melania fer með formennsku á fundi öryggisráðsins Fönguðu kolefni með sömu aðferð og átti að nota í Hvalfirði Eltihrellir Marin ekki talinn sakhæfur Vaktin: Sprengjum rignir enn Hundruð þúsunda farþega strandaglópar vegna stríðs í Íran Rannsaka skotárás í Texas sem mögulegt hryðjuverk Íranir svara fyrir sig og Ísraelar ráðast gegn Hezbollah í Líbanon Hóta að grípa til hernaðaraðgerða gegn Íran Hernaðaraðgerðum haldið áfram þar til „öllum markmiðum okkar er náð“ Sprengdu höfuðstöðvar byltingarvarðarins í loft upp Heitir að sökkva öllum íranska flotanum Fyrrverandi forseti Írans drepinn í loftárás Þrír bandarískir hermenn fallnir í átökum við Íran Gerir stólpagrín að Von der Leyen Hefja skothríð á „hjarta“ Teheran Sjá meira