Hjálpin berst hægt til jarðskjálftasvæða 18. ágúst 2007 05:00 Líkurnar á því að finna fólk á lífi í rústunum minnka hratt með hverjum deginum sem líður. MYND/afp
Meira en fimm hundruð lík höfðu í gær fundist á jarðskjálftasvæðunum í Perú og var búist við því að tala látinna myndi hækka enn. Stjórnvöld í Perú voru gagnrýnd fyrir það hve hjálpin berst hægt til hamfarasvæðanna. Alan Garcia, forseti Perú, segist þó bjartsýnn og lofar því að enginn þurfi að líða skort. „Enginn mun deyja úr hungri eða þorsta,“ sagði hann, og bætti við að eftir tíu daga verði ástandið farið að nálgast það sem venjulegt þykir. Hann tók þó fram að allt uppbyggingarstarf eftir jarðskjálftann seint á miðvikudagskvöld muni taka miklu lengri tíma. Skjálftinn mældist 8 stig á Richter-kvarða og eyðileggingin var mest í borginni Ica og þorpinu Pisco þar skammt frá. Ica og Pisco standa í eyðimörk um það bil 200 kílómetra suðaustur af höfuðborginni Lima. Í hafnarborginni Pisco var hvert líkið á fætur öðru borið út úr kirkjunni San Clemente og þeim raðað upp á torginu fyrir framan. Síðdegis voru líkin þar orðin 60. Bæjarstjórinn í Pisco segir að um 200 manns hafi verið við messu í kirkjunni þegar jarðskjálftinn reið yfir. Messan var nýbyrjuð þegar allt fór að nötra og stóð skjálftinn yfir í tvær mínútur. Einungis tvær súlur og hvolfþak kirkjunnar stóðu upp úr rústunum eftir að hamfarirnar höfðu gengið yfir. Björgunarfólk leitaði í gær að fólki í rústunum. Líkurnar á því að einhver finnist á lífi minnka hratt með hverjum deginum sem líður. „Við missum vonina um að finna nokkurn á lífi eftir að 24 klukkutímar eru liðnir,“ sagði Carlos Vallejos, heilbrigðisráðherra landsins, þar sem hann stóð fyrir utan kirkjurústirnar í Pisco. Bandaríkin, Sameinuðu þjóðirnar, Rauði krossinn og Evrópusambandið hafa veitt fé til hjálparstarfsins og sent tjöld, vatn, lyf og aðrar nauðsynjar á staðinn. Stjórnvöld í Perú sendu lögregluþjóna, hermenn og lækna á svæðið eins hratt og unnt var, en umferðin gekk hægt vegna þess að stórar sprungur eru víða á þjóðvegum í Perú auk þess sem rafmagnsmöstur liggja sums staðar þvert yfir vegina. Læknar í Perú hættu í verkfalli til þess að taka þátt í björgunarstarfinu.
Mest lesið Bein útsending: Marco Rubio heimsækir Ísland Innlent Umdeildur metsöluhöfundur látinn Erlent Afgerandi niðurstaða um að slíta kjarasamningum Innlent Portúgalsfarinn á bak við lás og slá Innlent Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Erlent Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Erlent Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Erlent Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Erlent Brotist inn í fjóra bíla í þremur hverfum Innlent Fengu heimild til þess að segja upp kjarasamningum Innlent Fleiri fréttir Fær Nóbelinn fyrir að fanga fiseindir í suðurskautsís Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í eðlisfræði? Fyrsta aftakan með aftökusveit frá stríðslokum Umdeildur metsöluhöfundur látinn Aðskilnaðarsinnar unnu í Quebec Missti hönd í mótmælunum Ætlar að borga fyrir umdeildar auglýsingar úr eigin sjóðum Hútar sagðir hörfa frá mynni Rauðahafs Idol-keppandi í lífstíðarfangelsi fyrir að skjóta eiginkonu sína Tugir í sóttkví í Síberíu eftir andlát starfsmanns rannsóknarstofu Fá Nóbelsverðlaun fyrir uppgötvun á ljósstýrðri erfðatækni Fluttu allar sprengjuflugvélar frá RAF Fairford Bein útsending: Hver hlýtur Nóbelsverðlaunin í læknisfræði? Höfðar mál gegn lögreglunni vegna húsleitarinnar Vann óvæntan sigur í fyrri umferðinni Boðaði óvænt þingkosningar á Spáni Stofnar „Ofurgreindarstjórnina“ þrátt fyrir ákall um hægari þróun Handtekin í Bandaríkjunum grunuð um njósnir Sýknaður eftir að hafa skotið mann til bana í dyragættinni Hyggst ná öllu landsvæðinu af Hútum Öryggisstjóri segir af sér hjá OpenAI Gerðu árás skömmu eftir að Þýskalandskanslari mætti Mennirnir sem létust voru feðgar Yfir fimm þúsund handteknir í frönsku stúdentamótmælunum Hluturinn sem fannst í sjónum reyndist meinlaus Rektor Cornell-háskóla rýfur þögnina Tveir látnir eftir skotárás í Noregi Fundið brak úr flugvélinni sem týndist á leið frá Bermúda Mikill viðbúnaður eftir að óþekktur hlutur fannst í sjónum Sjúkraflugvél týndist á leið frá Bermúda Sjá meira